— GESTAPÓ —
Breytt og bætt Gestapó
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli
        1, 2, 3  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 12/3/05 13:44

Þetta er magnað.

Ég pusa klukkunni inn fyrir þig minn kæri, ekki vil ég verða til þess að þú verðir svikinn um nóbelsverðlaunin fyrir rafrænar hátternisrannsóknir.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heiðglyrnir 12/3/05 13:45

Nöldra hvað er betr´en að nöldra.

Þið eruð nú bara nokkuð glúrnir þarna hjá Ritstjórninni. Hafið þökk fyrir þessa skemmtilegu útfærslu á hugmynd minni að teningunum, ekki slæmt það mar....

Var svona að spá í að nöldra svolítið samt. Sko þessi blessaði póstþjónn okkar hvað er með hann eiginlega, er þetta ekki bara ofhnoð "senda póst, sendi póst geyma póst gleyma póst bla bla o.s.fv. ...innpóstur, Útpóstur, Senda póst, haka við póst sem á að eyða eða geyma, hvað getur verið einfaldara.

Sko þessi rafmæli, þetta er frábær hugmynd, og mikið verður gaman að eiga rafmæli á Baggalút, En sko afhverju eru þessar myndir svona stórar mega þær ekki t.d. vera jafnstórar og myndirnar við félagsrit og textinn í samræmi við það. T.d núna þegar Lurkurinn átti rafmæli og maður var í sakleysi sínu að skrolla yfir félagsritin, þá lá bara hreinlega við hjartaáfalli þegar Lurkurinn birtist svona stór og ógnandi.
Alveg fyrir utan hvað það væri nú að mínu mati smekklegri uppsetning.

Teningar JIBBÍ.

Sir Heiðglyrnir Hinn Hugdjarfi, Riddaramennska er lífsstíll.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Helena 12/3/05 13:51

Enter mælti:

Steinríkur mælti:

Ég myndi klappa fyrir þessum breytingum ef þið hefðuð ekki sett inn orðskrípið pysti.

Hvað er að því að kalla þetta innlegg?

Vesitu Steinríkur, þetta er bara alveg rétt hjá þér. Þetta er bölvaður hortittur. Talað er um innlegg í umræður og það er gott og gilt íslenskt mál.

Ég hlýt að hafa verið illa drukkinn þegar ég át þetta skrípildi upp.

‹Kyssir Enter fyrir að taka út ljóta, vonda orðið›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 12/3/05 16:36

‹Er sammála síðasta ræðumanni og fer í biðröð eftir að kyssa Enter›

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Steinríkur 13/3/05 01:43

‹Stendur við orð sín og klappar ákaft fyrir þessum breytingum›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 13/3/05 02:21

‹Stendur í biðröð ›.... eftir hverju erum við að bíða?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bangsímon 13/3/05 12:06

Skabbi skrumari mælti:

‹Stendur í biðröð ›.... eftir hverju erum við að bíða?

‹...hleypur og stendur fyrir aftan Skabba.›
Fríu ákavíti?

Þeir sem eru klárir og hugsa, skilja aldrei neitt.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 13/3/05 17:50

Skabbi skrumari mælti:

‹Stendur í biðröð ›.... eftir hverju erum við að bíða?

Þessu:

Enter mælti:

Ég pusa klukkunni inn fyrir þig minn kæri, ekki vil ég verða til þess að þú verðir svikinn um nóbelsverðlaunin fyrir rafrænar hátternisrannsóknir.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
GESTUR
 • Svara • Vitna í • 
Vlad sem gestur 14/3/05 11:14

Veitt höfum vjer því athygli að búið er að bæta klukkunni við og er því hjer með hægt að hefja með formlegum hætti þá tilraunastarfsemi er minnst var á. Vjer vorum síðast á ferli 13/03/05 - 22:56 þrátt fyrir að nýjasta innlegg vort sje frá 14/03/05 - 0:40 . Fær þetta vart staðist og fengi þetta m.a.s. varla staðist heldur þó vjer hefðum notað tímavjel einhverntíma eftir kl. 22:55 í gærkvöldi (en svo er eigi).

Næsta skref tilraunarinnar er að koma hingað undir rjettu nafni og sjá hvað hefur breyst ‹Ljómar upp›.

Vlad (sem gestur til að spilla eigi verðmætum sönnunargögnum)

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 14/3/05 11:16

Nú vorum vjer síðast á ferli 14/03/05 - 0:40 þrátt fyrir að nú sjeum vjer hjer og klukkan sje 11:16.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 14/3/05 11:18

Og undanfarandi innlegg breytti þessu eigi, síðast á ferli 14/03/05 - 0:40 ‹Veltir fyrir sjer hvort tölvukerfi Baggalútssamsteypunnar sje undir áhrifum tímavjelar›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Helena 14/3/05 11:22

‹Veltir fyrir sér hvort tölvukerfið sé undir áhrifum ákavítis, að eitthvað af ákavíti gæti hafa smitast í tölvukerfi Baggalútssamsteypunnar. Ákveður að spyrja Skabba út í þennan möguleika við tækifæri›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
feministi 14/3/05 17:20

Vlad minn farið þér endilega að útvega sjálfum yður líf

‹Les þetta fimm sinnum yfir. Er samt ekki viss um að þérunin sé rétt......breytir textanum og þúar.....breytir honum síðan aftur og vonar það besta›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ísdrottningin 14/3/05 18:55

feministi mælti:

Vlad minn farið þér endilega að útvega sjálfum yðar líf

‹Les þetta fimm sinnum yfir. Er samt ekki viss um að þérunin sé rétt......breytir textanum og þúar.....breytir honum síðan aftur og vonar það besta›

Hvíslar að Femínistanum Ef ég skil þetta rétt þá á að vera yður en ekki yðar.

-Já það er sko margt skrýtið í kýrhausnum - Æðstastrympa - Höfundur skálarinnar - Hálendismálaráðherra -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 15/3/05 10:53

feministi mælti:

Vlad minn farið þér endilega að útvega sjálfum yðar líf

Hvað er það nú aftur ? ‹Klórar sér í höfðinu›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 15/3/05 14:01

feministi mælti:

Vlad minn farið þér endilega að útvega sjálfum yðar líf

‹Les þetta fimm sinnum yfir. Er samt ekki viss um að þérunin sé rétt......breytir textanum og þúar.....breytir honum síðan aftur og vonar það besta›

Þér þyrftuð að rifja upp þéringareglurnar! Rétt hefði verið að segja:

Tilvitnun:

Vlad minn. Farið þér endilega að útvega yður sjálfum líf.

Já, það borgar sig að gera gott betur en að vona það besta! Það dugar einungis að læra reglurnar.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 15/3/05 14:02

Betur færi að segja 'útvega sjálfum yður líf'.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 15/3/05 14:04

Best væri náttúrulega að sleppa svona ákúrum á forseta vorn!

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
        1, 2, 3  
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: