Þetta er magnað.
Ég pusa klukkunni inn fyrir þig minn kæri, ekki vil ég verða til þess að þú verðir svikinn um nóbelsverðlaunin fyrir rafrænar hátternisrannsóknir.
Nöldra hvað er betr´en að nöldra.
Þið eruð nú bara nokkuð glúrnir þarna hjá Ritstjórninni. Hafið þökk fyrir þessa skemmtilegu útfærslu á hugmynd minni að teningunum, ekki slæmt það mar....
Var svona að spá í að nöldra svolítið samt. Sko þessi blessaði póstþjónn okkar hvað er með hann eiginlega, er þetta ekki bara ofhnoð "senda póst, sendi póst geyma póst gleyma póst bla bla o.s.fv. ...innpóstur, Útpóstur, Senda póst, haka við póst sem á að eyða eða geyma, hvað getur verið einfaldara.
Sko þessi rafmæli, þetta er frábær hugmynd, og mikið verður gaman að eiga rafmæli á Baggalút, En sko afhverju eru þessar myndir svona stórar mega þær ekki t.d. vera jafnstórar og myndirnar við félagsrit og textinn í samræmi við það. T.d núna þegar Lurkurinn átti rafmæli og maður var í sakleysi sínu að skrolla yfir félagsritin, þá lá bara hreinlega við hjartaáfalli þegar Lurkurinn birtist svona stór og ógnandi.
Alveg fyrir utan hvað það væri nú að mínu mati smekklegri uppsetning.
Teningar JIBBÍ.
Ég myndi klappa fyrir þessum breytingum ef þið hefðuð ekki sett inn orðskrípið pysti.
Hvað er að því að kalla þetta innlegg?
Vesitu Steinríkur, þetta er bara alveg rétt hjá þér. Þetta er bölvaður hortittur. Talað er um innlegg í umræður og það er gott og gilt íslenskt mál.
Ég hlýt að hafa verið illa drukkinn þegar ég át þetta skrípildi upp.
Kyssir Enter fyrir að taka út ljóta, vonda orðið
Er sammála síðasta ræðumanni og fer í biðröð eftir að kyssa Enter
Stendur við orð sín og klappar ákaft fyrir þessum breytingum
Stendur í biðröð .... eftir hverju erum við að bíða?
Stendur í biðröð .... eftir hverju erum við að bíða?
...hleypur og stendur fyrir aftan Skabba.
Fríu ákavíti?
Stendur í biðröð .... eftir hverju erum við að bíða?
Þessu:
Ég pusa klukkunni inn fyrir þig minn kæri, ekki vil ég verða til þess að þú verðir svikinn um nóbelsverðlaunin fyrir rafrænar hátternisrannsóknir.
Veitt höfum vjer því athygli að búið er að bæta klukkunni við og er því hjer með hægt að hefja með formlegum hætti þá tilraunastarfsemi er minnst var á. Vjer vorum síðast á ferli 13/03/05 - 22:56 þrátt fyrir að nýjasta innlegg vort sje frá 14/03/05 - 0:40 . Fær þetta vart staðist og fengi þetta m.a.s. varla staðist heldur þó vjer hefðum notað tímavjel einhverntíma eftir kl. 22:55 í gærkvöldi (en svo er eigi).
Næsta skref tilraunarinnar er að koma hingað undir rjettu nafni og sjá hvað hefur breyst Ljómar upp.
Vlad (sem gestur til að spilla eigi verðmætum sönnunargögnum)
Nú vorum vjer síðast á ferli 14/03/05 - 0:40 þrátt fyrir að nú sjeum vjer hjer og klukkan sje 11:16.
Og undanfarandi innlegg breytti þessu eigi, síðast á ferli 14/03/05 - 0:40 Veltir fyrir sjer hvort tölvukerfi Baggalútssamsteypunnar sje undir áhrifum tímavjelar.
Veltir fyrir sér hvort tölvukerfið sé undir áhrifum ákavítis, að eitthvað af ákavíti gæti hafa smitast í tölvukerfi Baggalútssamsteypunnar. Ákveður að spyrja Skabba út í þennan möguleika við tækifæri
Vlad minn farið þér endilega að útvega sjálfum yður líf
Les þetta fimm sinnum yfir. Er samt ekki viss um að þérunin sé rétt......breytir textanum og þúar.....breytir honum síðan aftur og vonar það besta
Vlad minn farið þér endilega að útvega sjálfum yðar líf
Les þetta fimm sinnum yfir. Er samt ekki viss um að þérunin sé rétt......breytir textanum og þúar.....breytir honum síðan aftur og vonar það besta
Hvíslar að Femínistanum Ef ég skil þetta rétt þá á að vera yður en ekki yðar.
Vlad minn farið þér endilega að útvega sjálfum yðar líf
Hvað er það nú aftur ? Klórar sér í höfðinu
Vlad minn farið þér endilega að útvega sjálfum yðar líf
Les þetta fimm sinnum yfir. Er samt ekki viss um að þérunin sé rétt......breytir textanum og þúar.....breytir honum síðan aftur og vonar það besta
Þér þyrftuð að rifja upp þéringareglurnar! Rétt hefði verið að segja:
Vlad minn. Farið þér endilega að útvega yður sjálfum líf.
Já, það borgar sig að gera gott betur en að vona það besta! Það dugar einungis að læra reglurnar.
Best væri náttúrulega að sleppa svona ákúrum á forseta vorn!