Ég veit...við MH-ingar erum þekktir fyrir að greina slík smáatriði, jafnvel í gegnum hassmökkinn.
Nú velti ég fyrir mér, einhver sér jú umræddum MH-ingum fyrir eiturlyfjum þeim sem þeir nærast víst á og hverjir eru betur til þess fallnir að stunda slík viðskipti en einmitt smjörgreiddir Verslingar?
Annars er gott að hafa rifið sig á sínum tíma útúr þessari hringiðu allri, nú sit ég sæll og glaður með mitt heimagerða prófskírteini.
Glottir hálfvitalega, tannlaust.
Er ekki í lagi með ykkur að vera með einhvern framhaldsskólaríg hér á Gestapó... skammist ykkar... strunsar út
Stofnar timburverksmiðju og byrjar að fella skóginn.
Er ekki í lagi með ykkur að vera með einhvern framhaldsskólaríg hér á Gestapó... skammist ykkar... strunsar út
Þar sem maður er nú háskólavæddur ætti maður ekki að óhreinka mannorð sitt með því að yrða á illahyrt framhaldskólasmitbera. Þakka þér fyrir skabbi!
Rígur er skemmtilegur, sérstaklega þegar fylgst er með fólki sem tekur hann alvarlega. Þar sem ekki er til nein hefð fyrir háskólaríg, í ljósi þess að það er einungis einn háskóli á landinu (HÍ) og síðan nokkrir aðrir dæet háskólar sem eru enn á hvítvoðungsstigi, þá verða framhaldsskólar að duga sem vígvöllur fyrir innihaldslausan, asnalegan og skemmtilegan ríg.
Kannski, eftir 50 ár eða svo, verður komið gott tilefni til rígs milli HÍ og hr. Á meðan verður mr-VÍ/mh-VÍ/mh-mr (osfrv) rígur að duga.

Uss, leyfum þeim sem eru í HR að halda að þeir séu í ALVÖRU háskóla... Það er eitthvað svo krúttlegt!
Ekki það að mig langi endilega til að vera leiðinlegur við hæstvirtan konung Baggalútíu, en það er ekki hægt að segja um HA (Háskólann á Akureyri) að hann sé enn á hvítvoðungsskeiðinu, hann er kominn örlítið lengra en svo.
Ekkert mikið lengra, en örlítið.
Það er einmitt meinið, hr er ekki þess verðugur að hægt er að fara að rígjast í þeim.
Ekki það að mig langi endilega til að vera leiðinlegur við hæstvirtan konung Baggalútíu, en það er ekki hægt að segja um HA (Háskólann á Akureyri) að hann sé enn á hvítvoðungsskeiðinu, hann er kominn örlítið lengra en svo.
Ekkert mikið lengra, en örlítið.
Ha? Hvað er HA?
Hlær yfir eigin aulahúmor
Er Verzló ekki orðið tengdur við HR? Göng á milli og alles?
Tja jú, að einhverju leyti. hr er að reyna að freeridea flekklaust 100 ára orðspor VÍ. Hálf sorglegt eiginlega. En kannski verður hr orðinn umræðuhæfur eftir 50 ár eða svo.
Er Verzló ekki orðið tengdur við HR? Göng á milli og alles?
Jú í eitthvað urðu peningarnir að fara... Ekki var þeim varið í kennslu.
Enda lítið að kenna á framhaldsskólastigi. Það var hreinlega talið vera of mikið að eyða peningunum í enn einn skólastofunuddpottinn og því ákveðið að búa til 'háskola' í staðinn.
Ég skil. Hvenær koma svo göng beint yfir í Kringluna svo allir "háskóla"menntuðu viðskiptafræðingarnir geti farið að vinna fyrir sér strax, án þessað þurfa að bægslast yfir þessa stóru umferðargötu?
Á meðan ég man. Það er greinilegt samsæri í gangi: einungis einn strætisvagn stoppar við MH, á meðan hvorki meira né minna en FJÓRIR stoppa hjá VÍ. Þetta er út í hött, þar sem - eins og allir vita - fá Verzlingarnir allir far á Benzum foreldranna.
Það er rétt athugasemd Tina. Hins vegar stjórna Verzlingar ríki og sveitafélögum bak við tjöldin og hafa augljóslega hagað málum svona fyrir mh til að stríða nemendum.
Verxló er bara handbendi djöfulsins og verkfæri hins illa! Honum ber að eyða! VLAD! EINA SPRENGJU ÞANGAÐ!