Sælir þið háæruverðugu mér brjálaðari brjáluðu vísindamenn.
Ég er hér með slóðarræfil sem mig langaði að deila með ykkur, ef þið hafið fróðlegar slóðir þá endilega póstið þær hér, þá helst með stuttri skýringu.
Stutt yfirferð yfir heimsmynd vísindanna. Allt frá stærð alheimsins niður í kvarka og andefni.
http://universe-review.ca/
Þegar þið hafið prófað allt sem hér er þá eruð þið orðin löggilt spilafífl:
og svo er líka hægt að læra að tefla
Hvað er hægt að gera skemmtilegra á föstudagskvöldi en kynna sér einn mesta jöfur vísindanna?
Vísindavefurinn er náttla* klassískur.
*Náttúrulega/ auðvitað.
Ef þið hafið ekki kíkt á allar fróðlegu slóðirnar í bókasafninu þá er tími kominn til! Ljómar upp
já hvur fjandinn! Sparkar í stein
Svo má auðvitað benda á http://www.hvar.is , þaðan er hægt að komast í gífurlegt magn af fróðleik Ljómar upp og 'downloadar' greinum úr fræðiritum
Wikipedia er svo auðvitað snilldarvefur, hérna er hlekkur í samhverfusíðuna þeirra og hún vísar einmitt í Baggalút sem uppsprettu íslenskra samhverfa.