Eitt sinn var hjer stórmerkilegur þráður um samsæriskenningar: http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=2700 Ákveður að hann eigi heima í ónefndum lista
Þar gerðum vjer tvær stórmerkar uppgötvanir:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=2700&postdays=0&postorder=asc&start=33
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=2700&postdays=0&postorder=asc&start=69
Eftir umfangsmiklar rannsóknir höfum vjer gert aðra merka uppgötvun:
DÝRIÐ Í OPINBERUNARBÓKINNI ER FRÁ ÍSLANDI
Sje Opinberunarbókin lesin verður augljóst að dýrinu er STJÓRNAÐ AF TÖLVU því öll þau furðudýrin er birtast á vegum Satans eru augljóslega VJELMENNI. En þar eð um óvin er að ræða hljóta þeir m.a. að vera FRÁ EGYPTALANDI. Áður hefur verið sýnt fram á að Íslendingar eru AFKOMENDUR FORN-EGYPTA. Sje málið skoðað í samhengi við fyrri rannsóknir er vísað var til hjer að framan er augljóst að DÝRIÐ Í OPINBERUNARBÓKINNI ER JAFNFRAMT FRÁ MARS, hefur blandast afkomendum forn-Egypta OG HEFUR AÐSETUR Í SNÆFELLSJÖKLI. Jafnframt er augljóst að einungis Microsoft gæti gert eitthvað svona. HÖFÐUSTÖÐVAR MICROSOFT ERU Í RAUN OG VERU Í SNÆFELLSJÖKLI EN EKKI Í SEATTLE. Er Snæfellsjökull því hjer eftir rjettnefndur JÖKULL 666 EÐA JÖKULL HINS ILLA.
AÐSETUR HINS ILLA DÝRS OPINBERUNARBÓKARINNAR ER Í SNÆFELLSJÖKLI ÞAR SEM RAUNVERULEGT AÐSETUR MICROSOFT ER. BILL GATES ER MARSBÚI OG RÆNDI ELVIS PRESLEY.
Ljómar upp í fagurbláu, framandi skini frá undarlegu ljósi á himnum. Þagnar
Áhugavert. Sennilega hefur einhver ruglað Snæfellsjökul saman við Rainier-fjallið. Hvorttveggja er a) eldfjall, b) snjóþakið og c) sjáanlegt úr bœnum (Seattle sem Reykjavík) á góðum degi.
En þetta var ákaflega vondur dagur. Svo ekki sé minnst á vondan hárdag!
Áhugavert. Sennilega hefur einhver ruglað Snæfellsjökul saman við Rainier-fjallið. Hvorttveggja er a) eldfjall, b) snjóþakið og c) sjáanlegt úr bœnum (Seattle sem Reykjavík) á góðum degi.
Orðinn örlítið ringlaður af drykkjunni
Er Seattle þá á <HIC> suðvesturhorni Íslands ??
Rifjar upp landafræðina en gengur óvenju erfiðlega
Nei, það er rétt austan við Vík í Mýrdal er það ekki?
Er Elvis þá upp á Snæfellsjökli?
Nei. Á Mars, sbr. þe<HIC>tta:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=2700&postdays=0&postorder=asc&start=69
Láttu ekki svona Vlad, Elvis vinnur sem kerrustrákur í Fjarðarkaupum.
Það er útilokað því ef svo væri vissi það enginn. Skilyrði þess að samsæriskenningasmiðir geti uppgötvað aðsetur týndra stórmenna er að um afar óvenjuleg aðsetur sje að ræða (t.d. Mars).
Orðinn örlítið ringlaður af drykkjunni
Er Seattle þá á <HIC> suðvesturhorni Íslands ??
Rifjar upp landafræðina en gengur óvenju erfiðlega
Nei, ég var bara að spá í hvers vegna Microsoft hefur verið tengt Seattle, fyrst það er í Snæfellsjökli. Mér datt í hug að einhver hefði ruglast á fjöllunum. Rainier getur sést hér: http://vulcan.wr.usgs.gov/Imgs/Jpg/Historical/uw-archives_mt_rainier_admiralty_inlet_1792.jpg
... eða eru Rainier og Snæfell eitt og sama fjall á tveimur ólíkum stöðum?
... eða eru Rainier og Snæfell eitt og sama fjall á tveimur ólíkum stöðum?
Þjer segið nokkuð. Augljóslega er í báðum tilvikum um dulbúna píramída að ræða Klórar sér í höfðinu og finnst samsærið vera að verða afar flókið og umfangsmikið
En ef Gates hefur rænt Elvis og er á Snæfellsjökli/Ranier... hvernig má það vera að Elvis sé á Mars... hugsar sig um... er hann í haldi þar þá?
Innviðir Snæfellsjökuls eru reyndar allir úr trefjaplasti og plexigleri. Þar er mjög undarlegt skipulag á hlutum og merkilegasta fólk sem vinnur þar. Janis Joplin er kjarneðlisfræðingur, Jim Morrisson er aðal loftaflsfræðingurinn, Marylin Monroe er deildarstjóri efnafræðitilrauna og James Dean er kerfisfræðingur og yfirmaður stærðfræðitilraunahópsins. Svo sást þarna til Stephen Hawking í starfskynningu hjá húsverðinum
Af því Snæfellsjökull er á Mars, dulbúinn sem Mt. Olympus.
Nei, það er eiginlega öfugt. Snæfellsjökull er eftirlíking af Olympus Mons.
Iss, þið eruð öll úti að aka. Elvis býr í kjallara í Hlíðunum ásamt Jimmy Hoffa, og "Lilla" Lindbergh (Amelia Earhardt og Geirfinnur eru þar tíðir gestir). Þar stunda þau rannsóknir á sviði erfðavísinda, auk þess að velta sér upp úr kenningum tengdum Kennedy-morðunum (Sem ég kom hvergi nálægt ræskir sig...flýr)
Hvað er í gangi?Hrökklast aftur á bak og finnur nojueinkennin
OK bæ!
Ég held að þessi "Vímus" sé í rauninni Lindbergh-barnið...fannst ég kannast við fésið. Hringir í Irrational Enquirer