Þar sem Ædolið er í algleymingi, þá vil ég starta hér þráð um þennan yndislega sjónvarpsþátt.
Hvað er betra en að setjast niður á föstudagskveldi og hlusta á unaðslega tóna Ædolsins, þar sem hver einasti söngvari er stjarna, hver stjarna er sól og hver sól er gul klessa á svörtum fleti sem umlykur mann eins og túnfíflar á engi himnasælunnar.
Ég vil taka það fram að ég held með Pollu pönkara sem hefur svo sannarlega stolið senunni með sínum móhikanakamb og gaddaólum... hún er sko verðugur þáttakandi í þessari himnasælu...
Megas, Ellen og Eyþór fá hrós fyrir góða dómgæslu og Einar og Siggi einnig, en þeir eru hrikalega fyndnir stjórnendur...eða á ég að segja Straumendur... hohoho... afsakið vildi bara koma með smá brandara í stíl þáttarstraumendanna.. hahaha
Mæl þú manna heilastur Skabbi... með tommustokk
Heiða er kynþokkafyllsta kona Íslands og hreinlega geislar af fegurð og frjósemi. Hún er mikið söngstirni hvernig sem á málin er litið pg hvernig sem allt fer.
Hvað er betra en að setjast niður á föstudagskveldi og hlusta á unaðslega tóna Ædolsins, þar sem hver einasti söngvari er stjarna, hver stjarna er sól og hver sól er gul klessa á svörtum fleti sem umlykur mann eins og túnfíflar á engi himnasælunnar.
Verst að þessir sömu túnfíflar, sömu sólir stjörnur og söngvarar eru slegnir niður með offorsi og bægslagangi í hvert sinn sem þeir hefja upp raust sína.
Einn af öðrum eiga þau ekki afturkvæmt í beina útsendingu enda hafa verið "útsend" sjálf af farsímakynslóðum landsins.
Fólkið hækkar í tækjunum er sá eða sú útsenda lýkur þáttöku með sínum svanasöng á kappleik kvöldsins meðan fólkið tekur saman snakkpokana og gosið eftir vel heppnaða samverustund fjölskyldunnar.
„Hrikalega var þetta væmið“. Fer og þvær sér um hendurnar
Heiða er kynþokkafyllsta kona Íslands og hreinlega geislar af fegurð og frjósemi. Hún er mikið söngstirni hvernig sem á málin er litið pg hvernig sem allt fer.
Þér langar sem sagt að ríða henni!
Heiða er kynþokkafyllsta kona Íslands og hreinlega geislar af fegurð og frjósemi. Hún er mikið söngstirni hvernig sem á málin er litið pg hvernig sem allt fer.
Þér langar sem sagt að ríða henni!
Hér er fast að orði kveðið Bauv, en eigi mundi ég svo gjörla sparka henni framúr ef henni henni byði svo við að skríða upp í mína himnasæng.
Mér þykir þið vera orðnir klúrir... svona orðbragð myndi fá okkur klámskáldin til að roðna og blána...
Ég spái því að Elvis muni snúa aftur á Ælóinu, ungur sem aldrei fyrr. Hann mun stökkva fram á svið og sparka feita stráknum burt með vel völdu karatesparki, afhjúpa sig í stórkostlegum, níþröngum glimmerbúningi. Gamla hljómsveitin hans mun flykkjast á sviðið og þeir munu flytja æðislegustu útgáfu af Suspicious Minds sem nokkurn tíma hefur sést eða heyrst.
Önnur eins glimmrandi innspírerandi æðistónlist mun aldrei hafa heyrst áður og flutningurinn mun verða svo kraftmikill að hann mun stöðva styrjaldir, Bush mun grátandi feginn segja af sér, Ísraelar dansa burt af herteknu svæðunum, hryðjuverkamenn gefa sig fram með glæsilegum mjaðmahnykkjum og heimurinn mun fagna í harmónískum samhljóm yfir endurkomu Konungsins.
Íslenskar gelgjustelpur munu þrátt fyrir það kjósa sætustu stelpuna sem mun syngja útvatnaða karókíútgáfu af útvötnuðu, andlausu og drepleiðilegu Britnei Spírs lagi. Elvis mun þar af leiðandi tapa og heimurinn mun aftur hrökkva í glundroða og stríðsværingar.
Blótar herfilega og rífur hár sitt bauv hvernig veist þú hvað er að ríða?
...en eigi mundi ég svo gjörla sparka henni framúr ef henni henni byði svo við að skríða upp í mína himnasæng.
Þetta er einhver stórkostlegasta setning seinni tíma, auðvitað mun sækjast seint að sparka henni fram úr ef allar líkur eru á að hana bjóði við því að skríða upp í!Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
HATA ÆDOLIÐ!
Þvílík og önnur eins hátíð lágkúru og lágmenningar - laglaus kvikindi reyna við auðveldustu lög sem þau geta fundið og hvernig er þetta með dómnefndina; væri möguleiki að kenna henni annað lýsingarorð en ,,ógeðslegt" til að tjá hrifningu sína? ,,Vaá" verður líka á endanum frekar fátæklegt ef það er notað til að tjá allan tilfinningaskalan...
Ja, bjakk segi ég bara!
Vil svo minna á America´s next top model sem er á skjánum í kvöld!
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er og segir með glotti hvernig er hægt að hata eitthvað sem maður hefur ekki hitt???
HATA ÆDOLIÐ!
Þvílík og önnur eins hátíð lágkúru og lágmenningar - laglaus kvikindi reyna við auðveldustu lög sem þau geta fundið og hvernig er þetta með dómnefndina; væri möguleiki að kenna henni annað lýsingarorð en ,,ógeðslegt" til að tjá hrifningu sína? ,,Vaá" verður líka á endanum frekar fátæklegt ef það er notað til að tjá allan tilfinningaskalan...
Ja, bjakk segi ég bara!
Vil svo minna á America´s next top model sem er á skjánum í kvöld!
En Megas... hann er frábær...
Æi, ég veit alveg að þið fylgist öll spennt með Ædolinu. Látið ekki svona!
Vil svo minna á America´s next top model sem er á skjánum í kvöld!
Hef heyrt ótrúlega mikla fordóma um þann þátt. Fer að horfa sjálfur en kemst að því að þátturinn í kvöld er liðinn hjá. Brestur í óstöðvandi grát[/s]
Ég sagði það þá og segi það nú
Sigvaldi Kaldalóns er maðurinnBlótar herfilega og rífur hár sitt af rakaranum