— GESTAPÓ —
Af kvenfélögum og félögum kvenna
» Gestapó   » Efst á baugi
     1, 2  
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Flatnefur 23/2/05 22:34

Það var þetta með kvenfélögin í Kópavogi, kennd við framsókn.
Karlar sagðir ráða þar ferðinni og véla um fyrir veikara kyninu.
Í elstu kvenna starfsgreininni iðka menn slíkan bísniss. Þar nefnast karlmenn sem hagnast ?, og konurnar því í þessu tilfelli pólitískar ?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 23/2/05 22:51

...og hvað meinarðu kæri Flatnefur?

Annars finnst mér gaman að horfa á átökin í framsóknarflokkinum, sýnir best hvað hann er orðinn veikur...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 24/2/05 00:41

Flatnefur mælti:

elstu kvenna starfsgreininni

Hvað er það?
Safnari? Gyðja? Véfrétt?
Jeminn... ekki segja mér það.... Gleðikona!

Ertu nú að líkja aumingjans framsóknarfrúnum við gleðikonur?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mosa frænka 24/2/05 00:56

Ekki vissi ég að gleði væri sérgrein Framsóknarflokksins.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 24/2/05 01:04

Þórðargleði kannski...

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ísdrottningin 24/2/05 01:54

Eða bara ógleði?

-Já það er sko margt skrýtið í kýrhausnum - Æðstastrympa - Höfundur skálarinnar - Hálendismálaráðherra -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Frelsishetjan 24/2/05 10:00

Jahh ég hef nú jafnan verið talinn félagi kvenna... Bara svo ég vitni aðeins og þráðarheitið.

Drottnari allra vídda. Guð alls svalls. • Eigandi sálar hins Mikla Hákons. • Eigandi Nærbuxna. • Sjálfkjörinn formaður Ritstjórnar.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ugla 24/2/05 11:40

Þessi framsóknarflokkur er bara síðasta sort.
Tækifærissinnaðar undirlægjur.
Til í hvað sem er ef þeir bara mega vera memm.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 24/2/05 11:42

Nú væri óskandi að fá rækilegan pistil framsóknarhundsins voff um þetta illskiljanlega Kópavogsdrama. Upplýstu okkur voff, og vertu ekki að skafa ofan af því.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 24/2/05 13:03

Þetta var ósköp einfalt. Hattaklúbburinn fékk kennslustund í lýðræði (þ.e. einhver mætti aktúallí á fund) og hafði afar gott af því, enda lá það eitt fyrir þessum fundi að velja flottasta hattinn(sem er heilagur sannleikur). Það hefur lengi verið þekkt aðferð í öllu félagsstarfi að stela hreinlega fundum með því einu að mæta á þá. Þessari aðferð beittu kópavogskellingar og enginn hefði svo sem pælt í því (enda öllum sama um þessa kellingaklúbba) ef dramadrottningin Siv hefði ekki farið að væla yfir þessu á heimasíðu sinni, sem er títt lesin af blaðasnápum.

Eftir það varð þetta einhverra hluta vegna að þvílíku fárviðri í skot-staupi að enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi.

Kveðja
Framsóknarhundurinn

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ugla 24/2/05 13:09

Fíflagangur mælti:

Guð...og mér sem hefur þótt þú svo gáfulegur.....ertu svo bara framsóknarmaður.....‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 24/2/05 13:10

Hei, ég sagðist vera framsóknarhundur!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 24/2/05 13:31

Framsóknarhundarnir blífa þessa dagana sem og aðra daga.

Annars er þetta Kópavogsmál bara stormur í vatnsglasi og raskar ekki ró almennra framsóknarhunda. Flokksþing á næsta leyti, þar eiga seturétt yfir 800 fulltrúar þannig að hvorki Freyjur né Brynjur geta ráðið úrslitum þar. Skýringin er líklegast skyndilegt fráfall Sigurðar heitins Geirdals, það kom mönnum á óvart. Sumir vilja verða leiðtogar í bæjarmálum, aðrir vilja tryggja að hagsmunir þess hóps sem þeir eru í forystu fyrir séu ekki fyrir borð bornir.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ugla 24/2/05 13:36

BLE BLE...Flokkurinn sökkar og formaðurinn er lygari.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 24/2/05 14:01

Afar hnitmiðuð röksemdarfærsla. Er reyndar dæmigerð, en jæja...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 24/2/05 14:07

Af tiltölulega jákvæðum/hlutlausum ummælum Fíflagangs og voffs að dæma, er mér þá óhætt að álykta sem svo að þið eruð hvorugir í 'Sivjarliðinu' innan Framsóknar?

Í hvaða liði var hún aftur? Er hún Halldórsmeginn ellegar annars staðar?

Þó að álit stafþrykkis á Framsóknarflokknum sérlega takmarkað (vægast sagt), er innanflokkspólitíkin einkar skemmtileg. Sápuóperan og flóknir valdakaplarnir sem þar eru lagðir eru stórmerkilegir, svona í ljósi smæðar flokksfyrirbærisins. Þess vegna er eru Framsóknarpælarar eins og Fíflagangur og voff gulls ígildi.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 24/2/05 14:10

Eigi er hún Halldórsmegin, a.m.k. nú er hún er eigi lengur ráðherra.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 24/2/05 14:12

Ugla mælti:

BLE BLE...Flokkurinn sökkar og formaðurinn er lygari.

Einmitt ekki það sem við viljum sjá hér á Gestapó... skamm Ugla... við viljum rök þegar menn koma með svona yfirlýsingar...

Flokkurinn sökkar vegna...?
Formaðurinn er lygari vegna þess að...?

LOKAÐ
     1, 2  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: