Á hverjum degi les ég (eða fletti á hraðbyri) Fréttablaðið, stundum líka Dagblaðið og Morgunblaðið.
Á hverjum degi blasa við mér villur og ambögur sem að oft á tíðum er óskiljanlegt að blaðamenn hafi látið frá sér fara.
Það er mannlegt að gera mistök en hvar er heiður og metnaður þessara manna sem gera íslenskuna að atvinnu sinni?
Hér inn sting ég upp á því að við setjum villurnar sem æpa á okkur hverju sinni því það er betra að halda vöku sinni en að sofna á verðinum.
Verum meðvituð um rétt málfar, finnum villurnar, eflum máltilfinninguna og fáum meira út úr daglegum blaðalestri...
Þúsundir hrafna skotnar árlega
Fb 21/02 bls 12
Vantar ekki bara almennilega prófarkalesara? Blaðamaður sem er að verða of seinn með fréttina, les hana máske ekki gaumgæfilega yfir áður en hann sendir hana frá sér.
Þúsundir hrafna skotnar árlega
Fb 21/02 bls 8
Hmm... þetta er reyndar ekki rangt því þúsundir (hrafna) eru skotnar árlega. En það er rétt að ambögur eru margar, vér sáum eina nánast óskiljanlega málsgrein einhversstaðar í dag en munum því miður eigi hvar.
Victoria fæddi dreng á Ruber Internacional spítalanum í Madrid og var hann tekinn með keisaraskurði. Hann hefur verið skýrður Cruz Beckham
DV 21/02 bls 8

Eru þeir hrafnarnir skotnar?
Já þú meinar þær þúsundirnar eru skotnar. (bætti þessu inn eftirá en mínútu of seint því Tina svaraði mér strax)
Nei, þær þúsundirnar
Nei, þær þúsundirnar
En of sein ( og þá kom .....)
Var það ekki svoleiðis í laginu?
Victoria fæddi dreng á Ruber Internacional spítalanum í Madrid og var hann tekinn með keisaraskurði. Hann hefur verið skýrður Cruz Beckham
DV 21/02 bls 8
Ég efast um að drengurinn hafi verið skírður þó búið sé að nefna hann..
En að hann sé skýrður...........
Engan flötur á samningi við Kjartan Gunnarsson
DV 21/02 fyrirsögn bls 10
Ég gaf mér ekki tíma til að lesa DV, ég kíkti bara á nokkrar greinar.
Fyrir utan það sem að ég nefni hér sá ég a.m.k. þrjár fljótfærnisvillur.
En ég er alls ólærð í íslensku að öðru leyti en því að vera íslendingur, ég á ekki framhaldsnám að baki og ég veit að ég er ekki vel að mér í málfræði þó ég hafi hér áður fyrr haft sterka máltilfinningu.
Ég velti því stundum fyrir mér þegar ég sé svo margar villur í einu blaði, hversu margar ætli fari þá framhjá mér.....
Ég er með beinagrindinni af bókinni í kollinum á mér
DV 21/02 baksíða
Þetta er merkilegt. Einnig sýnir þetta vel, þá staðreynd að hverri manneskju er nauðsynlegt að finna sér fyllingu sem göfgar andann í sinni tilvist.
Mér líst vel á þennan þráð. Það er ekki vanþörf á að benda á allar þær ambögur, sem birtast manni á síðum blaðanna nær daglega. Þetta á bæði við um hin prentuðu blöð sem og vefútgáfur þeirra.
Kíkir í blöð
Hér er eitt lítið dæmi af forsíðu Fréttablaðsins 23. febrúar:
Þá frétti móðir hans af honum og sendi fósturfaðir drengsins á staðinn.
Blaðamaðurinn, sem skrifaði þetta þarf svo sannarlega að æfa sig í að fallbeygja orðin faðir, móðir, bróðir og systir, því auðvitað átti þarna að standa fósturföður.

Reyndar mætti halda að fréttablaðið hefði enga til að prófarkalesa það sem sett er í blaðið. Það laumast óvenju mikið af villum inn í það, hef ég tekið eftir. Þó les ég blaðið ekkert sérstaklega oft.
Ég er með beinagrindinni af bókinni í kollinum á mér
DV 21/02 baksíða
Skellir uppúr
Bara necrophilia í gangi hjá þessum
Þetta sáum vjer á forsíðu mbl.is rjett í þessu:
Gífurleg snjókoma hefur verið í Austurríki í dag. Eru umferðarslys, sem orðið hafa í dag, rakin til slæmra akstursskilyrða og einnig hefur verið varað við snjóflóðahættu. Var hluta af hraðbraut lokað vegna þess en gert er ráð fyrir að hægt verði að opna veginn að nýju síðar í dag þar snjóflóðinu var hleypt af stað með sprengju. Þá hafa bæir og þorp í fjallahéröðum víða einangrast vegna ófærðar.
Eigi er síðari helmingur frjettar þessarar til fyrirmyndar.