— GESTAPÓ —
Kombakkþráðurinn
» Gestapó   » Efst á baugi
     1, 2, 3, 4  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 21/2/05 21:45

Hugmynd að kombakki...

Þið sem hafið ekki séð ykkur fært að mæta undanfarið vegna anna eða annarra annarlegra annmarka (ansi hljómar þetta annars undarlega)...
Ég legg til að þið ákveðið öll sem eitt að mæta á fyrirfram ákveðnum tíma. Ég legg til að næsta sunnudagskvöld verði fyrir valinu og að þá mæti allir sem einn...

Með því að hafa svona langan fyrirvara, þá geta menn dottið í hug efni í nýja snilldarþræði, snilldarfélagsrit og annað sem getur gert þetta kvöld sem eftirminnilegast.

Vil ég ekki nefna neina á nöfn hvað þetta kombakk varðar, en þið vitið öll hver þið eruð... ég hef nefnilega trú á að enginn fastagestur Gestapó geti yfirgefið það svæði einn tveir og þrír og því væri dagsetning sem þessi ákveðinn hvati fyrir ykkur til að mæta elskurnar mínar....

Ég mun sjá um guðaveigarnar... Ákavíti á línuna (Vladimir sér örugglega um að redda ný-últrakóbalt-dufti)...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 21/2/05 23:43

Bravó, skál Skabbi. Það er fátt sem toppar gott kombakk.

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
bauv 22/2/05 13:18

‹Stekkur hæð sína›

Hvað, hver, hvur
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Smábaggi 22/2/05 16:04

Ég hef svo sannarlega séð mér fært um að mæta á Gestapó undanfarna daga, ykkur til vonbrigða. ‹Glottir eins og fífl›

Ég er heldur ekki fullorðin fyllibytta og kem auðvitað ekki á slíka samkomu (eins og venjulega).

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Bismark XI 22/2/05 18:48

Þetta verður spennandi. Ég hef ekki fengið ný-últrakóbalt-duft í langan langan tíma.

Ég er Sonur Sólarinnar, og ég ber þess enn merki. Verndari vinstra-eyra Tigru. Rauður. Búinn að kyssa Tinu St.Sebastian. Eigandi Nýju Morgunstjörnunar.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 23/2/05 00:45

Já, verður þetta ekki spennandi... margir sem gaman væri að sjá aftur í ham...

GESTUR
 • LOKAР• 
Afbæjarmaður 23/2/05 09:48

Ég kem

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 23/2/05 15:48

Vér komum með ný-últrakóbaltsduft, elipton ‹Veltir fyrir sér mögulegum skotmörkum›, plútóníum og eitthvað af nýjum þráðum og félagsritum...

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 23/2/05 18:27

Æ, elsku hlandpungarnir mínir... Ætli maður verði ekki að líta við og gera allt kolbrjálað eins og venjulega? ‹tekur á sprett og hleypur um alla veggi með tóma ákavítisflösku og iðrast þess að hafa tæmt hana›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Montessori 23/2/05 21:12

Þetta verður svoleiðis últraspennandi‹Stekkur hæð sína og vel það›

María mey. Eigandi eftirfarandi fyrirtækja og fjelaga: BF Group® Ltd., Baggaflug hf.® og Loftfari®.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
feministi 24/2/05 11:28

Hvað þarf ég að hafa verið dulbúin lengi til að geta tekið þátt í kombakki?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 24/2/05 12:49

Ég býst við alsherjar kombakki, ég ætla t.d. að vera sjálfur með kombakk, mæti líklega snemma á sunnudaginn og segist vera farinn í afvötnum og kem síðan með krafti á sunnudagskvöldið í alsherjar kombakki... hehe

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 24/2/05 14:40

feministi mælti:

Hvað þarf ég að hafa verið dulbúin lengi til að geta tekið þátt í kombakki?

Skráðu þig út hálftíma fyrir Kombakkið, en gættu þess að kveðja allt og alla með virktum fyrst. Þá er þér óhætt að snúa aftur endurnærð.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
feministi 24/2/05 15:33

Júlía mælti:

feministi mælti:

Hvað þarf ég að hafa verið dulbúin lengi til að geta tekið þátt í kombakki?

Skráðu þig út hálftíma fyrir Kombakkið, en gættu þess að kveðja allt og alla með virktum fyrst. Þá er þér óhætt að snúa aftur endurnærð.

Já, þetta er góð hugmynd hjá þér Júlía. Ég stefni á að bráðamóðgast eða örmagnast heiftarlega á sunnudaginn.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
bauv 24/2/05 15:34

‹Stekkur hæð sína›

Hvað, hver, hvur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 24/2/05 15:53

Svona bauv mitt. Ertu ekki búið að stökkva nóg í dag?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
bauv 24/2/05 16:11

Nei ég er að æfa mig fyrir þolpróf!

Hvað, hver, hvur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 24/2/05 16:12

Ætlarðu að verða brunaliðsbauv?

LOKAÐ
     1, 2, 3, 4  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: