Það má þá búast við því að maður missi úr vinnu og vinskap annarra við að dvelja hér langdvölum?
Herra Mófreður hafðu vit á að hætta strax. Skál Skabbi og Steinríkur gaman að sjá ykkur.
Hvers vegna skyldi ég hætta strax? Mér þykir ákaflega gaman hér.
Skál Mófreður minn, hver var að tala um að hætta, það er ekki það sama að hafa vit til að hætta og hætta, svo er bara ekkert hægt að hætta, svoleiðið að við getum alveg hætt að tala um að hætta. SKÁL Þarfagreinir skál Norn skál í boðinu.
Ég þakka öllum sem hafa óskað mér til hamingju. Endilega fáið ykkur meira af veigunum. Nóg er til.
Nei, þessari umræðu hefur verið hætt, Skál Z. Natanz minn hvað segist.
Allt segist, SKÁL! ágæti riddari, allt. Með sínum hætti, vitaskuld.
Nú það er þessi pakki Z. Natanz minn, sterka þögla týpan. Skál vinur. Og allir í boðinu Skál.
Já, skál!
Sýpur stórum
Hér er til siðs að skála en ekki halda langar ræður. Skál!
Jújú, hér er hlaðborð. Nóg af keti og snittum. Japlar á hangikjöti
Er þetta sauðahangiket?
Ójá. Taðreykt. Skælbrosir