Jæja félagar. Nú er komið að því. Hin óstjórnlega fíkn mín í Gestapó hefur leitt til þess að á tiltölulega skömmum tíma er ég kominn með 4000 innlegg. Ég veit ekki hvort ég á að vera stoltur eða hvort ég á að skammast mín.
Ég get að minnsta kosti upplýst það að félagslíf mitt og vinna hafa borið óbætanlegan skaða sem afleiðing af þessari hrikalegu áráttu. En það er allt í lagi, því að Gestapó er lífið, og lífið er Gestapó.
Hér er blútur og ákavíti handa þeim sem vilja. Einnig ýmsar tegundir annarra veiga í barskápnum.
Skál!
Brýst gegnum röðina lemur dyravörðinn labbar inn og tekur eitt kókglas og fær sér sopa,labbar svo út og "missir"óvart kók á dyravörðinn og fer svo í röðina og bíður átekta
Já, ég veit þá svosem ekki hvort ég á að óska þér til lukku með áfangann eða hafa áhyggjur... látum þetta bara nægja:
Þarfagreinir, gæðasál,
glúrin mannvitsbrekka.
Þarfagreinir, þína skál
þyrstir mig að drekka.
SKÁL!
Þakka vísuna, Z. Natan. Vel er ort.
Skálar við Z. Natan og bauv
Ég get að minnsta kosti upplýst það að félagslíf mitt og vinna hafa borið óbætanlegan skaða sem afleiðing af þessari hrikalegu áráttu.
Hmmm.... ég veit að félags- og ástarlíf mitt batnaði til muna eftir að ég kynntist Gestapó... Ljómar upp
Vertu ekki að kvarta Þarfagreinir minn... þú átt alltaf netvinina og vinna er bara fyrir fávita Glottir eins og fífl
Hin óstjórnlega fíkn mín í Gestapó hefur leitt til þess að á tiltölulega skömmum tíma er ég kominn með 4000 innlegg. Ég veit ekki hvort ég á að vera stoltur eða hvort ég á að skammast mín.
Ja.. ég er nú bara nokkuð stolt af mínum 5230 og eitthvað...
Held að þú eigir hamingjuóskir skilið elsku Þarfi Stekkur hæð sína
Til lukku!!
Ég get að minnsta kosti upplýst það að félagslíf mitt og vinna hafa borið óbætanlegan skaða sem afleiðing af þessari hrikalegu áráttu.
Hmmm.... ég veit að félags- og ástarlíf mitt batnaði til muna eftir að ég kynntist Gestapó... Ljómar upp
Vertu ekki að kvarta Þarfagreinir minn... þú átt alltaf netvinina og vinna er bara fyrir fávita Glottir eins og fífl
Þetta er eitthvað fyrir Ívar og Golíat að rannsaka.
Hér er blútur og ákavíti handa þeim sem vilja. Einnig ýmsar tegundir annarra veiga í barskápnum.
Skál!
Þakka
Gengur í skápinn og nær sér í malibu, vodka og ananassafa, blandar kokteil
Ég get að minnsta kosti upplýst það að félagslíf mitt og vinna hafa borið óbætanlegan skaða sem afleiðing af þessari hrikalegu áráttu.
Hmmm.... ég veit að félags- og ástarlíf mitt batnaði til muna eftir að ég kynntist Gestapó... Ljómar upp
Vertu ekki að kvarta Þarfagreinir minn... þú átt alltaf netvinina og vinna er bara fyrir fávita Glottir eins og fífl
Þetta er eitthvað fyrir Ívar og Golíat að rannsaka.
Já.... er það?
Til lukku vinur, þetta er SVAKALEGUR árangur. Gefur Þarfagreini nýja flautu svo að hann geti hent þessari gömlu fölsku aftur í ruslafötuna. Skál í boðinu.
Skál kallinn.
Ég hefði nú frekar búist við þræði í tilefni af innleggi nr. 2^12 hjá þér en þetta er líka stóráfangi...
Já... skál... til lukku bölvaður fíkillinn þinn hahaha... kominn í sömu súpu og við hin... ræskir sig já Skál fyrir Þarfagreini...