Eigum við ekki bara að halda þessu opnu þar til Barbapabbi gefur okkur svar um það hvort við megum senda honum stigin?
Jájá sendiði bara á mig stigasúpunar... stigabankanum lokar á morgun kl. segjum t.d. 21.12
Einungis ein skilaboð hafa borist til mín vegna þessarar keppni... framlengi skilaferst um nokkrar klukkustundir... en allt stefnir í rússnenska kosningu með 100% sigri XXXXXXXXX
Úps var búinn að gleyma því... fer að dæma og hvet aðra til að taka þátt... Barbapabbi þú tekur þátt líka...
-------------------------
Mikið drekk ég; aldrei er
edrú milli funda.
Strikið yfir fullur fer.
Fráleitt reglu stunda.
--------------------------
Stunda reglu; fráleitt fer
fullur yfir strikið.
Funda milli edrú er.
Aldrei ég drekk mikið.
--------------------------
Það er samróma álit allra er tjáðu sig um málið að þetta væri besta sléttubandið. Vegur þar þungt viðsnúningur merkingar, skýrleiki og innihald. Til hamingju
Hengir glitrandi orðu á Z.Natan Ó.Jónatanz
Aðrir voru svo jafnir að það tekur ekki upp að telja, allt þótti þetta með miklum ágætum
Bravó Z.Natan... þetta var líka snilldar sléttuband hjá kauða...
Natan góðan yrkir óð
eldar ljóða smiður
Satan fróður gleður glóð
gerist hljóða kliður
kliður hljóða gerist glóð
gleður fróður Satan
smiður ljóða eldar óð
yrkir góðan Natan
Brestur í óstöðvandi gleðigrát, & hneigir sig fyrir Barbapabba & öðrum viðstöddum
Já, jahérnahér... þakka, þakka. Sérstaklega þér, Skabbi, fyrir þetta síðasta - eins gott að það var ekki í keppninni! - & svo þótti mér nú einna mest varið í oddhenta sýnishornið sem þú komst með í upphafi... Nújæja, ætli það sé ekki best að reyna að halda barasta áfram að kveða.
Brosir gegnum tárin & hampar orðunni
Samfagnar ákaft og klappar svo 6 hendur sýnast á lofti
Þetta áttir þú sannarlega skilið, kæri skáldbróðir.
Til hamingju Natan ! Þú ert vel verðugur þessa titils. Við ykkur hina sem tókuð þátt vil ég segja. Það, að þáttakan var ekki meiri, sannar bara að það er ekki á færi margra að yrkja svona enda átti ég í mesta basli með að velja á milli, en mistókst algjörlega að semja sjálfur eitthvað boðlegt í keppnina.
Ég veit hvað þú ert að tala um en man ekki nema eitthvað brot.
Átti þetta ekki að hafa verið afmælisvísa honum til heiðurs en bar þveröfug skilaboð lesið afturábak.
"grundar dóma illa hann" .... "hallar réttu máli"
man ekki meira... vona að þú finnir út úr þessu.
Ég veit hvað þú ert að tala um en man ekki nema eitthvað brot.
Átti þetta ekki að hafa verið afmælisvísa honum til heiðurs en bar þveröfug skilaboð lesið afturábak.
"grundar dóma illa hann" .... "hallar réttu máli"
man ekki meira... vona að þú finnir út úr þessu.
Eru menn enn að spá í þessu:
http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=1701