— GESTAPÓ —
Kárahnjúkabraghenda og fyrripartur
» Gestapó   » Kveðist á
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 17/9/03 12:07

Já margt getur gerst á heiðum uppi. Hér er ein braghenda og einn fyrripartur um Kárahnjúkamálin. Til skýringar þá er Edelsíder nafn á undirverktakafyrirtæki, þótt það minni meira á þýskan svaladrykk, áfengan.

Kallagrey með kjúkur berar austr´í hnjúkum.
nudda saman köldum lúkum
nöldra yfir auðvaldskúkum.

Ennþá snúast hjólin aust´rí hnjúkum
hressir mig nú kaldur Edelsíder.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 17/9/03 12:19

voff mælti:

Ennþá snúast hjólin aust´rí hnjúkum
hressir mig nú kaldur Edelsíder.

Förum um þá höndum miðlungsmjúkum
mjöðinn drekkum hérna færðu líter

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 17/9/03 12:29

Tilvitnun:

Ennþá snúast hjólin aust´rí hnjúkum
hressir mig nú kaldur Edelsíder.
Förum um þá höndum miðlungsmjúkum
mjöðinn drekkum hérna færðu líter

blöðrur þó að beri þeir í lúkum
borgast varla gull þá mokað skít er

LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: