Er einhver leið að blokka pósta frá leiðinlega fólkinu? klórar sér í höfðinu
Í þessarri leiðinda aðstöðu hefur mér fundist tvær aðferðir virka best:
a. Sendu alltaf villuskilaboð til baka um að pósturinn hafi ekki borist, netfangið vitlaust, viðtakandinn sé í raun vírus eða eitthvað slíkt. Eftir nokkur ár hættir liðið að nenna að senda þér póst.
b. Brjóstu inn til viðkomandi og klipptu á músarsnúruna (endurtekið eftir þörfum)
Góðar og gildar lausnir í sjálfu sér - en þetta var í beinu framhaldi af tali um að blokka myndir af gestapó svo að ég var að tala um pósta/innlegg/pysjur/pysti(oj) á gestapó.
Hvar áttu annars heima? blístrar sakleysislega
Ég skil, mér hefur fundist að blokka þau mentally, nú eða beyta aðferð b, hún svínvirkar. Annars á ég heima í Háengi... afhvurju?
Engin ástæða...
Klæðir sig í innbrotsgallann
Það er fína veðrið...
Stingur músasnúruklippitöngum í vasann
♪flauti-flauti-flaut♪
Stekkur til og mælir minnsta sverleika allra glugga og hurða Jaseisei, hvergi meira en 110 cm, ég og músin mín ættum að vera óhult. Skilur músina eftir skjálfandi á beinunum