Sjáið þið mun á mynd 1 og mynd 2?
Hérna eru einfaldar leiðbeiningar til að fjarlægja auglýsingar!
Ef þú ert ekki búin(n) að setja upp Firefox þá mæli ég með því að skoða þetta.
Firefox er auðvitað stórkostlegur.
Annars veit ég ekki hversu aðgengilegt Ablock er fyrir meðalnotanda. Ég held að best fyrir slíka sé að notast við innflutta segðalista á borð við þennan.
Þessa skrá væri sniðugt að vista einhvers staðar á góðum stað í tölvunni, til að mynda á desktopinu.
Síðan má gera Ctrl+Shift+P eftir að Adblock hefur verið sett upp, og velja þar Adblock Options -> Import Filters. Síðan er skráin góða valin þar.

Mig grunar að þú hafir ekki lesið bloggið, hvað hefurðu á móti listanum sem er þar? Reyndar sýnist mér í fljótu bragði að sá listi sé mun öflugri en það sem þú vísar í.
Slær sjálfan sig í hausinn
Nei, ekki las ég þetta nú víst allt. Ég biðst forláts.
Mér finnst þetta nefnilega einmitt mjög einfalt og henta meðalnotendum við að komast að kjarna málsins! Ljómar upp
Snilld Gefur Gvendi klapp á bakið Verst að nú fer maður að lesa mbl.is sem uppspretta liga.
Fikkatar í adblokinu og adblockar óvart mindina af Gvend skrítna Vúúbbs.
Prófar "block Images from baggalutur.is" Ansans ári Hættir að fikta, aftengist og leggur á flótta Hjálp!
Block Images from ... er reyndar innbyggt í Firefox og er ekki skylt Adblock ...
Fikkatar í adblokinu og adblockar óvart mindina af Gvend skrítna Vúúbbs.
Þér að segja minn kæri Doktor þá vafra ég lútinn með myndir allra Gestapóa blokkaðar (baggalutur.is/images/avatars). Það hjálpar mér til að vera ekki með fordóma gagnvart gestapóum vegna útlits þeirra heldur frekar vegna innihalds pysta! Ljómar upp
Ég man ekki nöfn bara andlit, þessvegna þoli ég ekki þegar fólk skiptir um mind.

Gvendur : Hefur þú þá ekki séð myndina mína?
Zoidberg : Ég líka.
Prófar "block Images from baggalutur.is" Ansans ári Hættir að fikta, aftengist og leggur á flótta Hjálp!
Andskotans, ég varð að prufa þetta líka! HJÁLP!
Tools -> Options -> Web Features -> Takkinn Exceptions hjá Load Images.
Andar léttar Þakkir, miklar þakkir.
Er einhver leið að blokka pósta frá leiðinlega fólkinu? klórar sér í höfðinu
Er einhver leið að blokka pósta frá leiðinlega fólkinu? klórar sér í höfðinu
Í þessarri leiðinda aðstöðu hefur mér fundist tvær aðferðir virka best:
a. Sendu alltaf villuskilaboð til baka um að pósturinn hafi ekki borist, netfangið vitlaust, viðtakandinn sé í raun vírus eða eitthvað slíkt. Eftir nokkur ár hættir liðið að nenna að senda þér póst.
b. Brjóstu inn til viðkomandi og klipptu á músarsnúruna (endurtekið eftir þörfum)
Hefur þú þá ekki séð myndina mína?
Jújú, ég tékka á myndum fólks við og við, sérstaklega þegar þær ber á góma, þá opna ég oft lútinn í IE og flakka aðeins um heimavarnaliðið.