Laufin falla úr hverju tré.
Að mér gerir spjátrungur spé.
Sumarástin fær sér hlé.
Hvað ætli geimurinn gamall sé?
Hvern ætli best sé að bera á fé?
Átján miljarða ára er
vor geimur segir rektorinn
þá sömu upphæð ráðlegt er
að bera af fé á doktorinn
Reikn. 0107-26-26548
Fölna bráðum lítil lauf
af limum trjána brotna
falla þá í foldarrauf
fúlna grá og rotna
Haustið gleður, hjörtu kæta
hvessir ört og léttist geð
fer burt sólin fúla glæta
súldin hressir í og með
[Skabbi]
Haustið gleður, hjörtu kæta
hvessir ört og léttist geð
fer burt sólar fúla glæta
súldin hressir í og með.
[Voff]
Á taflmótin þá mun ég mæta.
manngangs- stunda flókið streð.
Ekki þýðir neitt að þræta,
þetta skal ég drepa peð.
Haustið gleður, hjörtu kæta
hvessir ört og léttist geð
fer burt sólin fúla glæta
súldin hressir í og með
klúðraði stuðlum og höfuðstöfum aðeins þarna...
er þetta ekki betra:
Haustið gleður, hjörtu kæta
hvessir ört og léttist geð
fer burt sólin fúla glæta
fjúka laufin í og með