Hvað er fólkið hérna gamalt, það værir gaman að vita það til þess að stirkja okkar Baggalísku-bönd. Sjálfur er ég 57 ára en var í fyrra 19 í 3 sinn.
Ég er þriggja og hálfs árs.
Djöfulli vissi ég það! Hleypur út Hey, strákar , ég vann veðmálið!
Ef ég ætti afmæli 29. febrúar væri ég fjórum sinnum yngri en ég er í raun.
Ég er gamall... En samt ungur...
Ég er talin yngri en Fóstbrœðra sögu.
Ég er talin yngri en Fóstbrœðra sögu.
Ég hef ekki manndóm í mér að leiðrétta stakt orð sem frá yður kemur. Engu að síður verð að fagna þessu innleggi, um leið og ég get þess að ég er augljóslega mun yngri en ungfrú Mosa.
Mínum æskuárum eyddi ég í braggahverfi. Meðal annara dalla sem ég var á get ég nefnt togarann Jón Forseta, glæsifleytuna Gullfoss og togarann Karlsefni. Ég keyrði rúntinn á Ford Vicktory hardtop tveggja dyra með v8 vél árgerð 55. Ég stundaði Vetrargarðinn og partý í gamla húsinu úr Djöflaeynni. Ég fékk dóp eins og ég gat í mig látið hjá flestum læknum bæjarins 15 ára gamall. M.a. pabba Davíðs Oddssonar. Var fyrst á Litla-Hrauni þegar það var vinalegt sveitaheimili. Og giskið þið nú á aldur minn.
Ég fæddist frostaveturinn mikla. Enda gífurlega svalur.
ég er jafngömul hattinum mínum
Ég fæddist sextugur og er það enn.
Ég er nógu gömul til að hafa haft stúdentspróf í nokkur ár en samt ekki nógu gömul til að fara að skipuleggja fertugsafmælið mitt alveg strax.
Ég er einhversstaðar á milli RokkMúsar og Austmanns...skilst mér.
Ég hef ekki manndóm í mér að leiðrétta stakt orð sem frá yður kemur. Engu að síður verð að fagna þessu innleggi, um leið og ég get þess að ég er augljóslega mun yngri en ungfrú Mosa.
Láttu ekki svona, Órækja. Ég ætti ekki að vera svona skelfileg.
Og nota bene að ég sagði ekki hversu mikið yngri Fóstbrœðra sögu ég sé talin.