Það var nú virðingarfvert af þeim að byrta hana samt. Gæti hugsað mjer ákveðin málpípugögn sem hefðu ekki viljað byrta hana.
Starir þegjandi út í loftið
Svona stór (Aðvörun: PDF leiðindi)
Ef þetta var ekki heilsíðu auglýsing þá sé ég ómöguleg úr þessu hve stór hún var.
-
Ok ok ... þetta var heilsíðuauglýsing. Vildi bara pota auglýsingunni inn fyrir þá sem vilja sjá hana.
Gott er að vita að þeir Ólafur Hannibalsson og Hans Kristján Árnason séu nú þegar búnir að fá tölvupóst frá útlöndum og farnir að skiptast á skoðunum við eitthvað fólk sem þeir hefðu ella algerlega farið á mis við. Það hefði nú verið leiðinlegra hefði þessi 3 milljóna króna pennavinaauglýsing ekki skilað neinum árangri, á sama tíma og fólk sveltur í Afríku, hörmungar í SA-Asíu, og sumir þurfa að reyna að draga fram lífið á hjálparsendingum frá Vesturlöndum.
Það hefði nú verið leiðinlegra hefði þessi 3 milljóna króna pennavinaauglýsing ekki skilað neinum árangri, á sama tíma og fólk sveltur í Afríku, hörmungar í SA-Asíu, og sumir þurfa að reyna að draga fram lífið á hjálparsendingum frá Vesturlöndum.
Án þess að ég vilji gefa í skyn að ég styðji stríð eða frið eða hafi yfirleitt einhverja skoðun, þá langar mig að spyrja voffa, hversu mikið kostaði stríðið í Írak og hversu marga hefði mátt metta fyrir þann pening?
Þetta er nú ekki mikill peningur ef tekið er tillit til þess að heilsíða í Mogganum er held ég á einshverja hálfa milljón.
Sem fýlustrumpur vil ég lýsa yfir hatri á stríðið í Írak og öllum stuðningsmönnum þess. Tekur kast
Ég vil koma því á framfæri að ég hef stutt þetta frá fyrsta degi.
Þetta stríð eða þessa yfirlýsingu þjóðarhreyfingarinnar?
Limbri er friðsamur hófsemdarmaður.
Auðvitað - þetta bara bauð upp á rangan misskilning...
Annars er ég feginn hvað geltið í voffa litla fær lítinn hljómgrunn. Ef að einu rökin gegn því að mótmæla þátttöku í stríði sem kostar skrilljónir eru fátæku börnin í Afríku er eitthvað mikið að fólki.
Teipar saman á sér kjaftinn og forðar sér yfir á ópólitíkt svæði
Hundsar hundskrílið
Varðandi þetta stríð þá er mér alveg fyrirmunað að skilja af hverju 80% þjóðarinnar vill fá afsökunarbeiðni á því að Saddam Hussein var tekinn úr umferð. Það er jú staðreynd að þó að þessi aðför hefði geta hepnast betur að í tíð Saddams voru mun fleiri sem tíndu lífi fyrir hans tilstilli en núna þegar verið er að reyna að koma þarna á líðræði og friði.