Loksins tókst mér ætlunarverkið, búinn að lesa alla Gestapó frá A-Ö, það var að vísu ekki eins mikið af Ö-um og maður myndi halda, en það er eitthvað sem má bæta úr.
Þetta er tilefni til að skála... og því segi ég Skál...
Já skál Skabbi minn, merkilegt afrek! En þarftu núna ekki að vinna ýmislegt upp á öðrum sviðum lífsins?
Ekki seinna vænna en að skála fyrir því.
Skál Skabbagrey, skál.
Farðu nú og kláraðu að lesa afganginn af alnetinu.
Skabbi... þú ert klikkaðri en ég!!
flissar óstjórnlega
Ég held að ég hafi fundið sálufélaga í vitleysunni!!!
Ég spái því að Skabbi nái að klára Internetið fyrir lok mánaðarins. Jafnvel strax næsta fimmtudag ef hann sleppir allri drykkju. Skorar á Skabba að reyna
Heyrðu nú mig ... nú er pressan á mér. Ég verð að fara að stunda fornleifarannsóknir líka. Það er víst ekki lengur nóg að lesa 'bara' alltaf allt nýtt sem kemur inn.
Skál annars!
Já, skál fyrir því, Skabbi og hvað var nú frambærilegast af því sem þú last?
Skabbi, Skabbi skabbi skabbi....................lyftir fingri ávítandi, en dettur bara ekkert nógu ávítandi í hug..........
Skemmtilegt að heyra Skabbi minn, er eimitt í þessari frábæru rannsókn þessa dagana.
Skál.... partí on.... mæti hérna í nótt, snarringlaður af öldrykkju... öööö, ákavítadrykkju... var bara að bæta upp skort á Ö-um...
Ég held samt að Skabbi sé ekki búinn að lesa nýjustu færslurnar á Golfvellinum... Vonast til að lyktin af öllu ákavítinu lokki Skabba á Lútstokk
Jæja Skabbi.. og núna er bara að læra þetta allt utanað.
Þá færðu pakka. Pakkar inn spennitreyjunni
ÖÖÖÖ... áttaði mig á því að ég var ekki búinn að lesa allann Næturgöltinn... þannig að ég dreg þetta til baka en spennitreyja hljómar samt vel
Mér finnst eitt svolítið skrítið. Ég skrifa og skrifa hérna inná gestapó en samt er ég alltaf bara með einhver 200 og eitthvað lásí innlegg. Skýring: jú einhver með tuskubrjálæði og þrifnaðaráráttu á hættulegu stigi þurrkar alltaf út meira en helming allra innleggja minna. Takk fyrir það. Mig langar hvort sem er ekkert að verða einhver heiðursgestur!