Já nú liggur Oddi greyið í því fyrir að hafa apakattast til að reyna að gera sitt til að varðveita íslenska tungu með því að hafa gamla málshætti og orðtök í dagbókum sem hann ætlaði að selja. Hann hefur ekki varað sig á því blessaðir að íslensk tunga er í raun tunga rusta og karlrembusvína. En nú er búið að innkalla dagbækurnar og það er vel.
En hví að láta þar við sitja? Víða skín karlremban í gegn. Í Gísla saga Súrssonar segir "Oft stendur illt af kvennahjali ...". http://www.snerpa.is/net/isl/gisl.htm 9. kafli.
Í Njáls-sögu segir "... eru köld kvenna ráð ...". http://www.snerpa.is/net/isl/njala.htm 116. kafli. Og ekki þarf að taka fram að í fornsögunum birtist víða hið versta viðhorf til kvenna. Þær eru giftar til fjár að þeim fornspurðum. Þær eru teknar frillutaki og það kallað hór. Þær hafa fæstar fyrirsvar fyrir búi og ef þær láta til sín taka eru þær uppnefndar kvenvargur og annað verra (sjá t.d. Gísla sögu Súrssonar).
Hvað er til ráða? Aldrei hélt ég að sá dagur myndi renna upp að ég myndi setja fram kröfu um bókabrennu. Og það á sjálfum fornsögunum. En nú hefur Feministafélag Íslands opnað augu mín. Þetta gengur ekki lengur. Fornsögurnar menga huga þeirra sem þær lesa með kvenfjandsamlegum áróðri. Brennum þær allar! Þurrkum þær úr minningunni! Leggjum niður rannsóknir á fornfræðum! Bönnum alla sagnfræði nema þar sem sagan er skoðuð út frá feminiskum sjónarhól með sérstaka áherslu á konuna sem fórnarlamb feðraveldis og karlakúgunar! Bönnum bókmenntir nema þær sem eru ætlaðar til að upplýsa og útskýra kúgun kvenna! Þá, og aðeins þá, mun hið nýja Ísland, feminisma og jafnréttis rísa upp og taka við af hin gamla Íslandi kúgunar og karllægrar hugmyndafræði!
heyr heyr klappar ákaft þar til blæðir úr lófum
Fornsögurnar eru bara fjandsamlegar almennt!
Meyjar orðum
skyli manngi trúa
né því er kveður kona
...
Svo er friður kvenna,
þeirra er flátt hyggja,
sem aki jó óbryddum
á ísi hálum
Bert eg nu mæli,
því að eg bæði veit,
brigður er karla hugur konum;
þá er vér fegurst mælum,
er vér flást hyggjum,
það tælir horska hugi.
eddukvæði
Bert eg nu mæli,
því að eg bæði veit,
brigður er karla hugur konum;
þá er vér fegurst mælum,
er vér flást hyggjum,
það tælir horska hugi.
eddukvæði
GUÐLAST HÚN SAGÐI BANNORÐIÐ!!
Brennum nornina!
Sæll Frelli minn og langt síðan þú fórst í taugarnar á mér síðast, gaman að þessu. Úr því þú talar um brennu, get ég ekki betur séð en að þú standir sjálfur í ljósum logum. Það er máske vegna þess að þú notar hástafi og voðastóra stafi í óhófi.

Hlustið ekki á nornina. Brennið hana!
Hér fljúgast bændur á...
Ég tek undir það að fornsögurnar séu fjandsamlegar yfirleitt. En var það ekki Elísabet Jökulsdóttir sem setti fram þá kenningu að fornsögurnar hafi verið skrifadar af konum til að gera grín að körlum? Í því ljósi breytist ýmislegt.

Ég hélt að það væri vitað að konurnar höfðu munnlega geymd á sögunum og svo voru það karlarnir sem skrifuðu þær sögur sem konurnar höfðu munað í gegnum kynslóðirnar.
Ég sá konu útí búð í gær - hún var með glóðarauga. - Ætli hún hafi veri löt við uppvaskið?
Hvaða búð?
Roðnar og lítur flóttalega í kringum sig
Ég sá konu útí búð í gær - hún var með glóðarauga. - Ætli hún hafi veri löt við uppvaskið?
Þú hefðir átt að sjá karlinn. Eða kannski er eins gott að þú misstir af því. Ljótt sjón, sei sei.
Ég sá konu útí búð í gær - hún var með glóðarauga. - Ætli hún hafi veri löt við uppvaskið?
Þú hefðir átt að sjá karlinn. Eða kannski er eins gott að þú misstir af því. Ljótt sjón, sei sei.
Var hann svona illa farinn á hnúunum ?
-
Það var mikið að allur saumaklúbburinn ræðst ekki á mann! - Ég elska ykkur öll. Farið nú samt ekki að taka undir allt ógeðið sem vellur útúr mér! FFer fram á gang og hugsar sinn gang