Vegna þráláts orðróms um leynilegar tilraunir með elipton á tunglinu Iapetusi sem er á braut um Satúrnus, en plánetan sú og öll hennar tungl eru í eigu Hreintrúarflokksins, vill Hreintrúarflokkur Baggalútíu taka eftirfarandi fram:
„Ekkert er hæft í þeim orðrómi að tunglið Iapetus hafi klofnað í tvennt vegna tilrauna Flokksins með gereyðingarvopn. Þetta slúður er augljóslega runnið undan rifjum óvina Flokksins – og þ.a.l. ríksins – og vísar Flokkurinn þeim til föðurhúsanna. Þessu til staðfestingar, er hér birt mynd sem tekin var af Iapetusi í morgun.“
Eins og sést á þessari mynd, eru engin ummerki þess að nokkuð hafi hent tunglið Iapetus.
Nú jæja? Hvað varð um hinn hlutann af því? Ykkur hægrimönnunum er ekki treystandi til neins og allra síst leynilegra tilrauna í geimnum.
Nú jæja? Hvað varð um hinn hlutann af því?
Hvað áttu við? Það er bara smá skuggi hœgri megin.
Skuggi hvað? Þetta er augljóslega bara lítill hluti af því. Aldrei sér maður tunglið svona í molum.
Í tengslum við þetta skal einnig áréttað að orðrómur þess efnis að á tunglinu Titan séu bruggverksmiðjur og að ákavíti renni stríðum straumum um árfarvegina þar er eigi á rökum reistur. Augljóst er að það sem hér sést getur eigi verið eftir ákavíti:
Hvernig getum við vitað að þetta er ekki gömul mynd, tekin áður en þið sprengduð tunglið í tætlur?
Sýndu okkur mynd af tuglinu að lesa Mogga dagsins á dag, annars er þetta örugglega fölsun...
Mogginn er því miður of lítill miðað við Iapetus til að sjást á myndum þeim er vér höfum undir höndum.
Allt í lagi.
Nýjasta ELKO blaðið dugar - það er tvöfalt stærra...
Ég get vottað að ég sá þetta sama tungl kaupa sér pylsu um daginn á lestarstöðinni í Álaborg. Nánar tiltekið í gær. Það var reyndar með plástur, svo ég þori engu að lofa um sprengingar.
Fyrirbærið sem þið eruð að horfa á kallast ´Planetoid´. Þetta er risavaxið geimfar. Ég hef séð myndir af borgum sem framandlegar verur byggðu á þessu forna tungli fyrir löngu síðan. Borgirnar teygja sig út yfir yfirborð tunglsins. ´Planetoid´er fyrirbæri eins og okkar tungl, risavaxið geimfar sem er sett saman úr mörgum náttúrulegum auðlindum og látið líta út eins og eðlilegt tungl á borð við Evrópu eða Íó,
Það er að finna stórgóðar og vandaðar greinar um Iaptetus á vefsíðu stjarnvísindamannsins Richard C. Hoagland, en hann var einn af fyrstu vísindamönnum heims til að staðfesta að andlitið á Mars sé byggt af geimverum eða Marsbúum. Enda allt of flókin umræða fyrir hægrimenn, hvað þá leyniþjónustur eða njósnara.
kær kveðja,
Ásgeir,