Langaði til að finna út hvort væri áhugi fyrir einum svona þræði, verið velkomin(n)
og leikið eða öllu heldur skrifið af fingrum fram. Gaman ef að þetta efni er samið í rauntíma og bergmálar líðan eða hvað sem ykkur langar að láta bergmála, hér má vera allt sem flokkast ekki undir hefðbundið ljóða form.
Súrefni
Sítróna
súrál
súrt og sætt
hundasúrur
súrt í broti.
Súríalískur
þorra
seðill.
Upphefð
Ég fékk orðu í eyrað.
Mitt uppáhalds atómljóð er samt óneitanlega 1. apríl eftir Andra Snæ Magnason, sem birtist í bókinni Ljóðasmygl og skáldarán.
Mars búinn
Súmerin
sagaði
og
sagaði
sögin
skökk
sagaði
í hring
hjólið
Flónbúinn flýr
er ekki alveg að skilja þennan þráð samt, er svo takmarkaður í hugsun
Karamelluduft
Angar í lofti kanilkeimur ...
senn verð ég kominn heim.
Viðskipta-Halli
Hiphop-Halli
Urðum Verðandi Skuldir
Kaldur vetur
myrk er nóttin
vitinn blikkar og blikkar og blikkar
Helli upp á kaffi
og dagbirtan
treður sér upp
úr svartnættinu
kæfir fallega einmannaleikann.