Hvert er álit ykkar á henni ?
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann og segir ekki eigin skoðun að sinni.
Eitthvað sem ég nenni ekki að ræða.
Mynd sem ég vildi óska að ég hefði ekki horft á, tel mig hafa sterkar taugar almennt en þarna voru atriði sem ég höndlaði ekki, aðallega í sambandi við misþyrmingar á konum.
Ég er nú mest hissa á því hversvegna sá skeleggi Milton vekur máls á einhverjum mesta viðbjóði "snuff-splatter" mynda sem um getur. Ég hef reyndar aðeins heyrt um hana af afspurn, en mér skilst að í henni sé indíánakonu nauðgað í raun og veru og hún síðan myrt og líkið af henni skorið í búta.
Er vert að hafa slíkt í flimtingum?
Ég held ekki. Eigum við ekki að beina athyglinni að einhverju skemmtilegra?
Engin var skorin í búta í raun og veru og engin dó við gerð myndarinnar. Þó er víst á einum stað alvöru misþyrmingar á fólki, og í myndinni eru gríðarlega grafísk dráp á dýrum. En myndatakan er stórkostleg.
Ég hef horft á hana 3 sinnum. Já, myndartakan er hress. Þessi mynd er án vafa sú mynd sem framleiðendur Blair Witch höfðu að leiðarljósi við val á stíl.
Ég skil vel að menn hafi trúað hér áður fyrr að fólk hafi í raun verið drepið við gerð myndarinnar, afar áhrifamikil mynd sem lætur mann opna augun fyrir soranum sem býr í mjög mörgum "venjulegum" manneskjum.
-
Ætlar enginn að asnast til að færa þennan þráð uppúr botninum á Almennu spjalli?