Salútar viðstöddum
Sælir, félagar. Það var þá kominn tími til að hér væri stofnaður flokkur sem hefur að leiðarljósi sanna mannúð. Ég er mjög áhugasamur um inngöngu, og get boðið fram krafta mína sem þarfagreinir. Allir sannir flokkar þurfa góðan þarfagreini.
Hvað segið þið við þessu?
Mænir á viðstadda votum hvolpaaugum
Að sjálfsögðu tryggirðu skoðanabróður þínum góðan og göfugan stað í flokknum, er það ekki, ha?
Velkomnir, vinir!
Ekki veit ég alveg hvað þarfagreinar gera, en það hljómar mjög vel. Örugglega bráðnauðsynlegt eins og þú segir, Þarfagreinir minn kær.
Smábaggi, þú mátt líka fá embætti ef þig svo fýsir. Hvað segir þú um stöðu gjaldkera?
Frábært, þá vantar okkur ekkert embætti!
Lyftir upp vodkaglasi
Skál fyrir framtíð og framgangi flokksins! Megum við ná fram markmiðum okkar í nafni mannúðarinnar!
ehrmm.....kannski vert að taka það sérstaklega fram að bindindismenn eru einnig velkomnir í flokkinn, þótt vissulega yrðu þeir í miklum minnihluta, enda bindindismenn að jafnaði með eindæmum leiðinlegir.
Skál! Lyftir glasi
Nú þarf að fara að breiða út boðskapinn. Veitingastaðurinn Núðlan mun gera sitt besta til þess.
Ég legg til að haldinn verði sérstakur listi yfir meðlimi í flokknum.
Skráðu þig núna!
Það er listi, hann er fremst.
Mér líst afar vel á þróun mála. Hér er orðið vel góðmennt. Skælbrosir sínu blíðasta
Nú er fullskipað í helstu embætti, en meðlimir eru samt sem áður mjög svo velkomnir. Því fleiri, því betra. Skál fyrir flokknum!
Lyftir vodkaglasi hátt á loft
Þarf ekki að fara ð gera stefnu?
Það er mjög góð hugmynd. Ég ætla að leggjast undir flet og skrifa stefnuskrá sem síðan verður lögð undir atkvæði félagsmanna. Ég hyggst notast við gömul skrif mín og áróðursmeistarans sem fyrirmynd.
Ég er sammála Smábagga. Eflaust væri betra að hafa embættisheitin fyrir framan, og nöfnin fyrir aftan. Þá gætum við haft einn dálk sem heitir "óbreyttir félagar" þar sem allir aðrir meðlimir eru skráðir.
Hvað segir þú um þetta Afturhaldskommatittur?
klórar sér í höfðinu
Ég sé að Smábaggi hefur dregið orð sín til baka.....
Öhh.. hann sagði allt sem segja þarf.. hvað sagði ég aftur? Mér líst ljómandi vel á allar hugmyndir mínar samt sem áður.
Jæja, ég missti meira að segja af þeim. En þetta er góð hugmynd, og skal ég fara í það verk að breyta þessu núna strax.
Klárar úr glasinu
Еше водки, пожалуйста!
Velkomin Norn ... kynngimagnaðir kraftar þínir munu án efa nýtast vel í þágu flokksins!
Gefur Norninni töfrasprota alsettan dularfullum kýrilískum frösum
Velkomin í hópinn, elsku Norna!
Því fleiri því betri (einnig er ekki verra að fá eina kvenkynsveru í viðbót)!