Ég var að hlýða á flutning á ljóðinu Seventh son of the seventh son í flutningi söngflokksins Iron Maiden.
Veit einhver hvað pæling þarna býr að baki? Hvað er þetta með sj´öunda son sjöunda sonarins, mér er þetta framandi?
Ég man að söngflokkurinn Bauhaus flutti óð er hét Third Uncle, en þriðji frændinn virtist vera frekar meinlaus.
Sjöundi sonur sjöunda sonar býr yfir afar öflugum galdramætti; ég held þeim öflugasta sem dauðlegur maður getur búið yfir. Meira veit ég ekki.
Stórgott kvæði (og hljómplata) með stórgóðum sönghópi, annars.
Sjöundi sonur sjöunda sonar býr yfir afar öflugum galdramætti; ég held þeim öflugasta sem dauðlegur maður getur búið yfir. Meira veit ég ekki.
Þetta stemmir allt, sérstaklega þetta með að þú vitir ekki meira.
-
Áhugasömum um sjöundu syni er hér með bent á bókina Sourcery í Discworld seríunni, en hún fjallar einmitt um seiðkarl, sem er sjöundi sonur galdrakarls (þ.e. sjöundi sonur sjöunda sonar sjöunda sonar).
Seiðkarlar eru:
A) Með öflugri galdramátt en galdrakarlar.
B) Dauðlegir menn.
Fyrst að Þarfi veit ekki meira, og það sem hann þykist vita er rangt, má leiða líkum að því að hann viti ekki neitt Ljómar upp
Er það það eina sem hann veit? Starir þegjandi út í loftið
Áhugasömum um sjöundu syni er hér með bent á bókina Sourcery í Discworld seríunni Ljómar upp
Og svo er reyndar líka talað um sjöunda son sjöunda sonar í Ísfólkinu. Samt ekki fyrr en í bók 36 eða svo. Það er hins vegar tilgangslaust að ætla sér að byrja að lesa seríuna í númer 36, svo ég mæli með að fólk lesi allar 47 bækurnar. Í réttri röð.
Það eina sem ég veit er að ég veit ekki neitt.
Hér er sitthvað um sjösoninn:
Hér er sitthvað um sjösoninn:
Enter ert þú nokkuð sjösonur? kæmi mér ekkert svo sem á óvart.
Það er hins vegar tilgangslaust að ætla sér að byrja að lesa seríuna í númer 36, svo ég mæli með að fólk lesi allar 47 bækurnar. Í réttri röð.
Það eina sem ég veit er að ég veit ekki neitt.
En nú vitum vér þó a.m.k. tvennt Ljómar upp: Að vér munum aldrei lesa eina einustu Ísfólksbók og að vér vitum a.m.k. tvennt.
Hér er sitthvað um sjösoninn:
Enter ert þú nokkuð sjösonur? kæmi mér ekkert svo sem á óvart.
Mei. Ég er fyrsti sonur annars sonar. Enda hef ég óbrigðult tímaskyn.
Enter ert þú nokkuð sjösonur? kæmi mér ekkert svo sem á óvart.
Mei. Ég er fyrsti sonur annars sonar. Enda hef ég óbrigðult tímaskyn.
Var afi þinn nokkuð „dóttir“?
En nú vitum vér þó a.m.k. tvennt Ljómar upp: Að vér munum aldrei lesa eina einustu Ísfólksbók og að vér vitum a.m.k. tvennt.
Já það er líklega rétt hjá þér elsku Vladimir að þú ættir aldrei að lesa eina einustu ísfólksbók. Þær eru nefnilega uppfullar af samsærismakki og það myndi bara halda fyrir þér vöku. Glottir með sjálfri sér
Hvernig er með fyrsta son fyrsta sonar? Er hann yfirleitt fjallmyndarlegur eða er ég einsdæmi? skoðar sjálfan sig í speglinum
Eða hafa þér kannski óraunhæfa sjálfsmynd?
Fyrsti sonur fyrsta sonar ætti að vera kominn í beinan karllegg af föður sínum eins og reyndar sjöundi sonur sjöunda sonar - það er að segja ef hann er ekki eingetinn á laun.
Fyrsti sonur fyrsta sonar ætti að vera kominn í beinan karllegg af föður sínum eins og reyndar sjöundi sonur sjöunda sonar - það er að segja ef hann er ekki eingetinn á laun.
Er ekki talað um að hann væri kominn í beinan karllegg af afa sínum ?
-
Það fer vitaskuld eftir því hvort afinn var karlkyns eða kvenkyns.