Og gæsin er sannarlega líka rándýr í orðsins fyllstu merkingu. A.m.k. sú við Tjörnina er rændi bíllyklum konu nokkurrar nú á dögunum með því að éta þá (sé eitthvað að marka falsmiðlana).
Ekki voru þau góð tíðendi. En gæs sem étur bíllykla er samt skárri en gæs sem étur bíla.
Samt er ég af þeirri skoðun að gæsir þessar séu í þjónústu Djöfulsins.
En hvað með gæsir er bara éta Lödur, sbr. þetta: http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=4091&start=123
Ljómar upp og veltir fyrir sér hvort til séu slíkar gæsir í þjónustu Drottins en eigi Kölska
Síðar var flokkunum fjölgað í fimm: Animalia, Plantae, Fungi, Protozoa og Bacteria. Nýlega bættist sjötti flokkurinn, Archaea við. Þar er um að ræða hitakærar örverur o.þ.h., þ.e. lífverur er lifa við aðstæður sem eru þannig að þar til nýlega var eigi talið að þar gæti neitt líf þrifist.
Animalia=dýraríki.
Plantæ=plönturíki.
Fungi=svepparíki.
Bacteria=ríki örvera.
Archæa=ríki hitakærra örvera.
Þetta teljum vér oss skilja en þá skiljum vér eigi né munum hvað Protoza er. Getur e-r verið svo góður að segja það? Eigi er til latnezk-íslenzk orðabók á heimili voru.
Ég nota bara google í svona: http://www.google.com/search?q=define%3Aprotozoa
Protozoa= ríki einfrumunga (flóknari en örverur)
Og ekki má gleyma Baglitzia, hinum fullkomna stoni. Allt sem lifir og hrærist innan Baggalútíu.
Auðvitað. Vér gleymdum þessu bara.
Hvar kemur svo Kóbalt inn í þetta allt saman. Já eða demónar? Ég vil endilega fá að vita í hvaða flokk Guð er (hún er svo furðulegt fyrirbæri þessi elska). Og svo að endingu er spurning með Ástþór Magnússson... fungi?
Hvar kemur svo Kóbalt inn í þetta allt saman. Já eða demónar? Ég vil endilega fá að vita í hvaða flokk Guð er
Þetta álítum vér verðugt rannsóknarefni fyrir óstofnaða guðfræðideild Hreintrúarflokksins. Viðeigandi finnst oss að bæta við sjöunda flokknum vegna þessa en þó er eigi við hæfi að setja ára þar líka. Eru þeir kannski afar stórar, hitakærar örverur ?
Viðeigandi finnst oss að bæta við sjöunda flokknum vegna þessa en þó er eigi við hæfi að setja ára þar líka. Eru þeir kannski afar stórar, hitakærar örverur ?
Ég held að þeir kjósi frekar að líta á sig sem afar stórar hitakærar óværur
rándýr eru fólk sem rænir peninga af öðrum eða kostar mikla peninga sjálft fyrir samfélagið, eins og t.d. Halldór Ásgrímsson, sem er ´rándýr´og vinnur í ´rándýru´ráðuneyti sem mig langar til að sé flutt til Þingvalla í skiptum fyrir heitann pott,
Rándýr eru m.ö.o. ólíkt möppudýrum þau dýr sem allir eru ánægðir með í þjóðfélaginu og enginn þorir að kvarta undan, því ef kvartað er undan þeim grípa þau umsvifalaust til vopna, eða setja fyrirtækin á hausinn eða heilu bæjarfélögin og þá er enga vinnu að fá. Möppudýrin eru þannig að þau nærast nær eingöngu á upplýsingum, og voru skiljanlega ekki skráð opinberlega í dýrabókum á dögum Darwins þar sem menn voru ekki orðnir það háðir upplýsingum á þeim tíma.
Að lokum er aðaldýrið, uppáhalds dýrið mitt, fnyyyyykurinn, sem tók opinberlega við af nyknum. En menn vita eflaust nú þegar hvað ég á við svo engin ástæða til að velta því neitt meira fyrir sér.
kær kveðja,
Ásgeir,