Ein spurning hefur öðrum fremur haldið fyrir mér vöku undanfarið: Eru fuglar dýr?
Hvað segja lærðir spekingar um það?
Já, nú eru góð ráð dýr... jú þau eru að því er ég best veit... dýr...
Hvernig er það flokkast ekki allar lífverur í annað hvort plöntur eða dýr? Hvað með þörunga, eru þeir plöntur eða dýr?
Já, nú eru góð ráð dýr... jú þau eru að því er ég best veit... dýr...
Hvernig er það flokkast ekki allar lífverur í annað hvort plöntur eða dýr? Hvað með þörunga, eru þeir plöntur eða dýr?
Eru skordýr, áttfætlur og allt það pakk þá líka "dýr"? Ég neita algerlega að láta flokka mig með almennum fiskiflugum þakka þér!
Eru þeir ekki meira svona samansafn lífrænna efna með vængi?
Mér finnst nefnilega samskonar munur á fuglum og dýrum (sem ég svo nefni; kykvindum sem halda sig að mestu á jörðu) annarsvegar og fiskum og dýrum hins vegar. Þess vegna langar mig að vita hvort sú flokkun (fiskar-fuglar-dýr) sé viðurkennd.
"Dýr" hlýtur að vera einhverskonar yfirhópur, hvernig ætlum við annars að útskýra hvali og leðurblökur? Nú eða breiðnef? Fuglar eru ekki spendýr (eins og flest þau "Dýr" sem við í daglegu tali köllum dýr), en ég segi að fuglar séu augljóslega "Dýr".
Erum við ekki flokkuð einhvernvegin svona: Lífvera (allt sem er lifandi), dýr (allt sem er ekki planta), hryggdýr (þar erum við með fiskum og fuglum), spendýr (þar detta fiskar og fuglar út), prímatar (þar detta öll önnur dýr út, nema Menn, Apar og aðrir prímatar), Menn (allir menn nema Belgar)?
Svo ekki sé minnst á Færeyinga. Eða hvað? Voru ríkin ekki líka fimm? Klórar sér í skegginu Ég veit þetta ekki..
Reyndar eruð þið að gleyma sveppum. Yfirflokkarnir eru því dýr, plöntur og sveppir.
Fuglar eru svo á sama stað í röðinni og spendýr, fiskar, skordýr, áttfættlingar o.fl.
-
En Baggalýtingar? Erum við mengi af Mannkyninu eða er mannkynið mengi af okkur... verður alveg ruglaður
Bagglýtingar og mannkyn eru gagnvæmt útilokandi mengi (e. Mutually exclusive).
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Mér finnst ánægjulegt að vera stak í útilokandi mengi. Allt virðist svo miklu skýrara.
Teiknar undarlegar Venn-myndir upp um alla veggi af einskærri ánægju. Svolítið eins og hellisbúi með mengjaáráttu
Ég er mengi. Ég er líka stak í sjálfum mér.
Þú ert líka alveg einstakur...
Hvernig vissirðu? Já, ég er einmitt eina stakið í sjálfum mér.
Ein spurning hefur öðrum fremur haldið fyrir mér vöku undanfarið: Eru fuglar dýr?
Hvað segja lærðir spekingar um það?
Rjúpan er rándýr.
Ein spurning hefur öðrum fremur haldið fyrir mér vöku undanfarið: Eru fuglar dýr?
Hvað segja lærðir spekingar um það?
Eigi erum vér vel að oss í líffræði en rákumst á eftirfarandi upplýsingar í bók um allt annað efni er vér erum að lesa:
Lífverum var upphaflega skipt upp í tvo flokka, plöntur og dýr. Þetta var á 18. öld. Fuglar eru augljóslega eigi plöntur.
Síðar var flokkunum fjölgað í fimm: Animalia, Plantae, Fungi, Protozoa og Bacteria. Nýlega bættist sjötti flokkurinn, Archaea við. Þar er um að ræða hitakærar örverur o.þ.h., þ.e. lífverur er lifa við aðstæður sem eru þannig að þar til nýlega var eigi talið að þar gæti neitt líf þrifist.
Miðað við þetta eru fuglar dýr Starir þegjandi út í loftið.
Miðað við þetta eru fuglar dýr.
Og sumir bara ansi dýrir líka. Kjúklingur er t.d. alveg hlægilega dýr, sýnist mér. Sei sei.