— GESTAPÓ —
Er allt fólk undir 30 slæmt fólk ?
» Gestapó   » Efst á baugi
        1, 2, 3, 4  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 12/1/05 11:54

‹Fær veður af hver framdi umrædd morð og verður mjög áhugasamur enda ljóst að þá er tímavél með í spilinu›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Eyminginn 12/1/05 14:15

Það mundi enginn með fullu viti leigja fjúkandi dýrt hús eintómum smástrákum undir þrítugu á fylleríi! Geturðu ýmindað þér þvagmagnið sem flæðir um gólfin maður.
Hefur yfir höfuð einhver hér séð grautúúrtimbraðan karl þrífa klósett?

Auðvitað áttirðu að segja að tveir kvenmenn eða svo væru með í för, þá hefði þetta ekki verið neitt mál.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Flauel 12/1/05 18:14

..og skal ég það muna,næst þegar þess háttar aðstæður knýja dyra !

Sir Flauel
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 12/1/05 18:24

Ætli það myndi ekki bara enda með að eigandinn myndi halda að um ægilegt kynsvall væri að ræða og neita að leigja bústaðinn af þeim sökum...
‹Starir þegjandi út í loftið›
Best væri að fara tvö saman og þykjast ætla að eiga rómantíska helgi... og svo koma allir vinirnir óvænt í heimsókn....
Þannig ertu með útskýringar á reiðum höndum...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 12/1/05 18:41

Eða segjast vera skáti. Skátar eru tegundin sem fólk treystir. Segist ætla að skoða skóginn og klifra fjallið (það er alltaf fjall).

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 12/1/05 18:42

Eða segjast vera anarkisti í kosmískum hugleiðingum um hlutverk goth í nútímasamfélagi... þá verður þér ekki trúað og þú færð umsvifalaust bústaðinn...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 12/1/05 18:48

‹Kemur hlaupandi á eftir Skabba›
Má ég smakka? Bara eina tá eða svo?

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 12/1/05 20:54

Hægri litlutá, þá ættirðu að vera búin að fá full mikið neðan í því...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 12/1/05 22:26

Langbest er ef maður segist vera í kammerhljómsveit og það eigi að taka snarpar æfingar fyrir konsertinn sem eigi að vera á sunnudeginum. Það eru allir svo grunlausir út í fólk sem spilar klassíska tónlist ‹Hlær djöfullega innra með sér. Vonar fyrir hönd allra tónlistarmenntaðra kunningja sinna að þetta bragð komist aldrei upp›

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
SlipknotFan13 13/1/05 00:19

Strengjafólk er áreiðanlega verstu drykkjurútar sem ég hef fyrirhitt, nema ef vera skyldu skátar. Það er þessi bæling innan hópsins fram til menntaskólaaldurs sem veldur síðan flóði af drykkju og kynjóttum kenjum í tengslum við hana. En allt þó sérkennilega sívílisjérað. Mér finnst það dularfullt.

Annars þá er besta sumarbústaðartrikkið að finna bústað í eigu fyrirtækja, sbr. t.d. bústaði baugs. Þeim er skylt að leigja til starfsmanna sinna, sem flestir eru á aldrinum 14-25.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
víólskrímsl 14/1/05 12:51

SlipknotFan13 mælti:

Strengjafólk er áreiðanlega verstu drykkjurútar sem ég hef fyrirhitt, nema ef vera skyldu skátar. Það er þessi bæling innan hópsins fram til menntaskólaaldurs sem veldur síðan flóði af drykkju og kynjóttum kenjum í tengslum við hana. En allt þó sérkennilega sívílisjérað. Mér finnst það dularfullt.

Annars þá er besta sumarbústaðartrikkið að finna bústað í eigu fyrirtækja, sbr. t.d. bústaði baugs. Þeim er skylt að leigja til starfsmanna sinna, sem flestir eru á aldrinum 14-25.

Iss, blásararnir eru miklu verri.

‹finnst að sér vegið›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Jóakim Aðalönd 24/1/05 01:53

Rétt er það. Hins vegar eru söngvararnir bölvaðir dragbítar á brennivínsdrykkjuna. Bezt er að hafa nóg af blásurum og strengjaspilurum, ef halda á villta kynlífssamkomu. Ekki að ég hafi svosem nokkurn tímann gert það, en vonandi kveikir þetta hugmynd hjá öðrum.

Seztur í helgan stein...
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Er ég vitleysingur? 24/1/05 19:18

Én nennti nú ekki að lesa allt þetta sem stendur hérna, en ég vildi bara segja það að ég er ekki sammála því að allt fólk undir 30 sé slæmt.
Sjálfur hef ég nú verið undir 30 og persónulega fannst mér ég sjálfur ekkert vera slæmur.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 24/1/05 19:21

Nú þá ertu ósammála öllum sem voru að skrifa hér á undan... hehe, þú veist ekki hvort ég er að segja satt nema þú lesir allt sem er hér á undan... sem er reyndar frumskilyrði fyrir því að svara...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Er ég vitleysingur? 24/1/05 19:31

Iss, þið eruð örugglega öll bara einhverjir ellismellir með uppáhaldsfrasann: "heimur versnandi fer".

‹Brosir afsakandi, enda veit hann að slíkt skítkast er ekki vel liðið hérna, enda var hann bara að gantast›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 24/1/05 19:33

Ókey, fyrst þú nennir ekki að lesa þráðinn, þá var einn að fárast yfir því að hafa ekki fengið sumarbústað á leigu sökum aldurs...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 24/1/05 19:34

‹Dansar í hringi og sönglar›
Ég er undir þrítugt, ég er undir þrítugt.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 24/1/05 19:35

‹Tekur stríðsdans og syngur›

Ég er yfir þrítugt, ég er yfir þrítugt...

LOKAÐ
        1, 2, 3, 4  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: