Hvað segiði annars? Ekkert að frétta?
Laumar sér í enn eina, þegar hann sér staflann sem Skabbi lumar á
Mér sýndist ég sjá hana Ormlaugu hérna áðan. Hún var að leiða Glúm - hvað segið þið um það?
Allt sæmilegt bara...
sveiflar tveimur pönnum í einu, en pönnsuhrúgan stækkar ekkert
Þetta er voðagott Skabbi minn. Þú ert listakokkur. Ofan á allt annað.
Þakka þér fyrir Enter minn, fáðu þér endilega meira...
Ætli maður nái að svara í réttum fasa að þessu sinni...
Með fullan munninn Dakk Gabbi minn.
Blessaður hafðekki áhyggjur af svörunum, þó þú sért seinn til. Hljóðið berst svo voða hægt hérna í akademíunni. Hér er allt galtómt. Nema auðvitað besservisserarnir í rökfræðihorninu.
Hellir sér mjólk í glas og dæsir
Með fullan munninn Dakk Gabbi minn.
Blessaður hafðekki áhyggjur af svörunum, þó þú sért seinn til. Hljóðið berst svo voða hægt hérna í akademíunni. Hér er allt galtómt. Nema auðvitað besservisserarnir í rökfræðihorninu.
Hellir sér mjólk í glas og dæsir
Já hvernig gengur hjá þeim ?
-
Hún hefur gríðarlega góð áhrif á Glúmsa gamla...
Mjá vonandi. Hann er víst genginn í þennan roðamauraklúbb þarna. Kallanginn, sennilega orðinn hálfskrýtinn af öllu þessu læðupokaveseni.
Fær sér eina pönnsu til
Hvað segir þú annars Limbri minn. Þú þegir bara? Ekkert að frétta úr ríki bjórs og bauna?
Fyrirgefðu ætlaði ekki að grípa frammí fyrir þér. Æ ég veit ekki með þessa rökfræði, hún er svo akademísk eitthvað.
Svipast um eftir sykurkarinu
Klárar deigið, hellir ákavíti í glas og byrjar að setja sultu og rjóma á nokkrar pönnsur eigum við ekki að hafa þetta almennilegt fyrst við erum byrjaðir?
Kemur með ný-últrakóbaltsduft
Skál !
Sýpur á fagurbláum drykk og fær sér pönnuköku með
slammar glas af ákavíti
Ég er að segja ykkur það, pönnsur eru flatar...
Nei nei, afsakað þú. Ég var svosem bara að röfla eitthvað.
En í fréttum er það helst héðan að ég er að fara hefja aðra önn mína. Framleiðslutæknifræði er ekki jafn leiðinleg og hún hljómar. Núna er ég að taka viku námskeið í rennibekkjum, logsuðu, laserskurði og þess háttar. Það er mikilvægt að maður viti hvað almúginn getur smíðað fyrir mann þegar maður er orðinn hærra settur og merkilegri.
-