Vér minnum á slagorð Hreintrúarflokksins:
Flöt jörð, slétt föt, hrein trú !
Ég hef persónulega farið í teygjustökk fram af brún jarðarinnar oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.
Og er hún ekki sporöskjulaga? Ha? Ha?
ég veit ekki, en ég hef aldrei rekist á horn, svo ég gæti alveg trúað því...
Og er hún ekki sporöskjulaga? Ha? Ha?
Nei, það er hún örugglega ekki. Illar tungur og villutrúarmenn segja að hún sé perulaga.
Flatt er flott!
Kemur með nýbakaða pönnuköku Sjáið þetta líkan, hérna sjáum við þetta svart á hvítu, hmm já dáldið viðbrennt líkan... stráir sykri á líkanið, sykurinn bráðnar smá og myndar blauta flekki á köflum og háar klessur sums staðar ... sko þarna er Himalayja, þarna Öræfajökull, Þingvallavatn er þarna og Kyrrahafið þarna... sannfærð?
rúllar pönnukökunni upp og borðar
röltir um leitandi að pönnsum
En ef maður spáir aðeins í orðinu pönnukaka, þetta er eiginlega engin kaka er það? nartar í eina ...en góðar eru þær...
Hmm. Er þetta þá kannske frekar einhvers konar brauð? Pönnu-brauð? Meeei. Pönnu ... baka?
Grípur pönnsu úr vasa Skabba og japlar hugsandi á henni.
Það hittir þú naglan á höfuðið. Pannsa. Það er orðið sem við skulum nota hér eftir og ekkert annað.
-
Pönnufletja, pönnuklessa, pönnuþynna?
byrjar að baka pönnuklessu á fullu fyrir þá sem koma með hugmyndir að nýju orði fyrir pönnuköku
Pannsa? Er það ekki eitthvað mexíkóskt? Pönnsa? Pannsa?
Pannsa? Pönnsa? Hmm.
Réttir Limbra eina í viðbót.