— GESTAPÓ —
Mismæli í útvarpi
» Gestapó   » Efst á baugi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 11/1/05 14:42

Hér datt mér í hug að væri skemmtilegt að setja fyndin mismæli sem þið hafið heyrt í útvarpi.

Ég byrja:

Ég var í makindum mínum að vinna í morgun þegar ég heyrði einhver flottustu mismæli í auglýsingalestri sem ég hef heyrt. Og ennþá betra var hvernig þulurinn klúðraði sig út úr þessu.

„Pallíettujakkar, pallíettujakkar... hér mismælti þulur sig eins og kjáni... þetta átti að vera Pallettutjakkar, Pallettutjakkar, Verkfæralagerinn“

Svo fylgdu nokkrar auglýsingar í kjölfarið og aumingjans þulurinn var gersamlega að missa sig úr hlátri en náði að klára lesturinn með skjálfandi röddu...

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 11/1/05 15:14

Úr veðurfregnum:

„Á Grænlandshafi er kyrrstæð 990 millibara lægð sem þokast norðaustur...“

„KR... afsakið, Valur á 66 gráðum norður...“

„... síðdegisskúrir fram eftir degi...“

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
SlipknotFan13 11/1/05 18:03

Þetta finnst mér skemmtilegur þráður, þó ég muni ekkert af sama meiði í svipinn.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Wonko the Sane 11/1/05 19:57

Já ég man bara gamla standarda eins og...

Flott Einar, Flott Einar... Netagerðim.

Hinn gullskeggjaði engill með grænu vængina - Sérfræðingur í stökíómetrískum reikningum um fenómenin í ranimoskinu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Milton Friedman 11/1/05 20:19

"Vöru úrval á öllum hæðum, kjallara búðin"

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 11/1/05 23:51

"Ístru-flanir minnka afköst Búrfellsvirkjunar."

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Afturhaldskommatittur 11/1/05 23:59

"Kommúnisminn er dauður"

Mestu mismæli sögunnar, tel ég. ‹Syngur nallann. Hátt. Á rússnensku›

Aðalritari Kommúnistaflokks Baggalútíu • Öreigar allra landa sameinist! - Ísland úr NATO fyrst herinn fór burt! - Cuba si, Yankee no! - Fram þjáðir menn í þúsund löndum! - Hasta la Victoria siempre! - Og lifi byltingin, ávallt!
LOKAÐ
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: