En að nota eynungys ufsylon? Ljómar upp
Eigi er það góð hugmynd - nema e.t.v. er dr. Zoidberg er ávarpaður Starir þegjandi út í loftið
Alltílæ, ef orðum er beint á Zoidberg skal ávalt rita með 'y'.
Kæry Zoydberg! Myg langar að ynna þyg eftyr eynu atryðy varðandy yllvýgan ylsjúkdóm.
Verst er að geta eigi verið með tvennskonar nafn með innleggjum, vjer þyrftum að geta kallað oss 'Vladymyr' í samskiptum við Dr. Zoidberg án þess að það breyti 'yfirskrift' allra innleggja Starir þegjandi út í loftið
Afbragð; nú þegar eru komnar upp persónubundnar mállýskur, eftir því hvern maður ávarpar, frekar en eftir því hvað hverjum og einum er tamt.
Og kannski væri ástæða til að koma á þeirri reglu að elítan skuli þjeruð ? Ljómar upp
Líst ljómandi vel á það... En ég þarf samt ekki að tala um sjálfa mig í fleirtölu er það?
Stendur hugsi og hnyklar brýrnar
Ég á í nægilegum persónuleikakrísum án þess að ég fari að vera Vér...
Síðasta hugmynd Vladimirs er frábær, en eins og Nornin benti á (held ég) þurfum við þá að "véra" okkur sjálf?
Nei, eigi þarf þess.
Ég legg til að þegnum Baggalútíu verði kennt að tala og skrifa skammlaust á okkar ástkæra ylhýra máli áður en við förum að búa til nýtt tungumál. Þótt margir hér séu vel máli farnir og færir í stafsetningu eru alltof mörg skemmd epli í körfunni ef þannig má að orði komast.
Og kannski væri ástæða til að koma á þeirri reglu að elítan skuli þjeruð ? Ljómar upp
Mér líst illa á þá tillögu, nema að sjálfsögðu að ég geti skipt á notaða klósettpappírnum hans Frella fyrir e-ð embætti?
lÍTÍSKA! Gefur frá sér vellíðunarstunu
Lútspík
Voruð þér að lesa 1984 e. George Orwell?
Lútspík er nefnilega óhugnanlega líkt tungumálinu á Airstrip One, Newspeak (les. Erstripp Vonn, Njúspík).
Er ekki verið að vísa í 1337speak... það hélt ég allavega, nördið sem ég er.
Ógurlegar málhænur getið þið verið! Þetta er auðvitað Blútska! Eða það væri náttúrulega nærtækast að kalla málið Skál þar sem það er algengasta orðið í Baggalútíu!
Ógurlegar málhænur getið þið verið! Þetta er auðvitað Blútska! Eða það væri náttúrulega nærtækast að kalla málið Skál þar sem það er algengasta orðið í Baggalútíu!
Nei, blútína hljómar miklu virðulegar, minnir á latína. En nú vantar orð yfir það er frá Baggalútíu er. Er það baggalútískt, baggalýskt, baggalýzkt eða eitthvað annað ?