Leggjum grunn að nýju tungumáli Baggalúts og Gestapó.
Allar almennilegar þjóðir verða að eiga sér tungumál!
Lútína er lík íslenzku en færð yfir á hærra plan með hámenningarlegum tilvísunum, sjerhœfðri stafsetningu og jafnvel eru ákveðnir stafir sem farið hafa firir lítið.
Svo er stranglega bannað að sklíta orðið Lútspík í tvennt á rangan máta.
Forvitnum er einnig bent á að síðar mun Albert Yggarz skrifa stórfróðlegt félagsrit á Lútínu.
Eigi þykir oss 'Lútspík' nœgilega íslenzkulegt orð til að vjer getum litið á það sem íslenzku á hærra plani. Teljum vjer því nauðsynlegt að fundið verði betra orð og lýsum vjer hjer með formlega eftir því.
Lútína er frábært orð! Styð það algerlega
Lútíska eða bagglíska hljómar best í mínum eyrum. Annars krefst ég þess að „y" og „je“ verði brúkað í þessu máli. Einhverjar fleiri reglur vantar líka, kannski að banna hægrimönnum að tala þetta?
Lútína er orðið. Og í máli þessu leggjum vjer til að nota beri 'je' í stað 'é', 'y' eftir því sem við á, 'z' eins og á árum áður og að greint verði á milli 'æ' og 'œ' Ljómar upp
Brýnast er að hefja hverja setningu á stórum staf (nema umfjöllunarefnið sé hljómsveitin múm), vanda greinarmerkjasetningu og forðast c (nema verið c að fjalla um sé-vítamín).
Nenni ómögulega að læra muninn á œ og æ á gamals aldri, nógu erfitt var að átta sig á hvar á að nota þ og hvar ð.
Hmm... þó undarlegt megi virðast þekkjum vér núna líklega betur muninn á 'æ' og 'œ' en reglurnar um 'z' er oss finnast að sumu leyti flóknari (þó eigi séu þær sérlega flóknar).
Neitar að sætta sig við orðið og rænir málinu
Hahahahaha!
(Hver er annars munurinn á þessum æ-um? Er hægt að segja það á prenti?)
Ef taka á upp 'je' í stað 'é' er ekki nema sjálfsagt og eðlilegt að jeg, Júlía, fái e.k. 'stefgjöld' ('je'-gjöld) vegna aukinnar notkunar á mínum staf.
Það kostar sitt að rekar hallirnar og Kúba ætlar að verða dýrari en jeg hugði, þegar viðræður okkar Fidels hófust.
Hver er annars munurinn á þessum æ-um? Er hægt að segja það á prenti?)
Sjá hér: http://www.baggalutur.is/profile.php?mode=viewprofile&u=512&n=1286
Og að sjálfsögðu yrði einhvernveginn að fjármagna kostnaðinn við nýtt tungumál Ljómar upp við tilhugsunina um nýja skatta og gjöld
Lútína er það, ég held að ég þekki muninn á 'æ' og 'œ', það verður bara að koma í ljós. Setan er annað mál...
...og ekkert uppslilón þá verð ég sáttur. Bíður spenntur eftir jákvæðum viðbrögðum
Bíddu, halló! Ég rændi tungumálinu! Af hverju tekur enginn eftir mér.. Snöktir út af athyglisleysinu
Af því þú ert smár. Stækkaðu, þá kannski hættum við að traðka á þér.
Endilega, og hafðu mikið af remúlaði á henni. Þetta var líka ekkert mál, ég rek hvort sem er sorpeyðingarstöð.
En að nota eynungys ufsylon? Ljómar upp