Ég hefði bara pantað pizzur.
Flatbauv?
Myllukökur, Myllubauv... HEY... MÁ ÞAÐ?!?
Nei Ívar, þetta er bróðir hans. Bong.
...og nú er komin nóg af stríðni og allir að biðjast afsökunar á að hafa strítt bauv... Nema hann hafi gaman af þessu sjálfur, þá er það í lagi...
Hjartanlega sammála. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Aðgát skal höfð í nærveru Bauv! Það eru ekki ný sannindi! En elsku Bauv okkar, afsakaðu þennan asnaskap en við gerum þetta einmitt af því okkur þykir svo heeeeeelvíti vænt um þig!
Það er með þetta eins og annað talnaefni í Biblíunni, það er bara ekkert að marka tölur í Biblíunni. 40 dagar og 40 nætur mun bara þýða "mjög langur tími". 5 fiskar og 2 brauð (eða var það bauv) þýðir því bara "hellings slatti, en þó ekki yfirgengileg glás".
Ég hefði bara pantað pizzur.
Man einhver hér hver fann upp pizzuna ? Óljóst rámar oss í að eigi hafi það gerst á Ítalíu og að langt sé síðan það gerðist. Jafnvel þúsundir ára. En um misminni kann að vera að ræða hjá oss Reynir að muna hvort minnst sé á pizzur í Biblíunni.
Pizzurnar ku hafa verið uppfundnar í Napólí einhverntímann á árabilinu 500-1200 eftir krist. Plús mínus nokkur ár...
Við nánari athugun, sem var þó ekki mjög nákvæm, kom eftirfarandi í ljós:
Flatbrauð voru þekkt fyrirbæri í löndum í kringum miðjarðarhaf, t.d. í Babýlóníu og víðar. Ítalirnir tóku upp á því að krydda þetta brauð með hvítlauk, ólívum og ýmsu öðru. Pizzan ku fyrst hafa verið skjalfest árið 997. Þó er það ekki fyrr en á 19. öld sem tómaturinn komst í kynni við pizzuna, og var það í Napólí.
Sko, Þetta átti bara að vera smá spaugþráður um bauv en ekki einhver söguskýringaþáttur! Tilhvers haldiði eiginlega að Vísindaakademían sé eiginlega? Til þess að láta smyrja bílinn sinn? Ó NEI!
Bauv
ristar bauv