Hvað var þetta með að jarðskjálftinn við Súmötru hafi orsakað að pólarnir hafi færst úr stað? Getur einhver frætt mig um þetta og hvaða áhrif þetta kemur til með að hafa á jörðina og okkur?
Eyjan Súmatra, sem er 5. stærsta eyja heimsins, færðist um 34 metra í suðsuðaustur eftir þeim fréttum sem ég hef í höndunum. Áræðanleiki dana er þó svipaður og bragðgæði löngu útrunnins rjóma... svo við bíðum frekar fregna.
-
Ef ég man rétt þá færðist jörðin um 2 cm frá fyrri möndulstöðu. Jörðin snýst líka hraðar fyrir vikið, líklega í krinum 3 milljónustu úr sekúndu hraðar. Annars er skynsamlegt að bíða eftir útskýringum vísindafróðra á borð við Vladimír Fuckov. Hann ætti að geta útskýrt þessi ósköp.
Var það ekki það að vegna þess að massi færðist fjær miðju jarðar þá hægði á jörðinni eitthvað örlítið? Svona eins og þegar maður heldur á Ákavítisflösku og snýr sér í hring, þá fer maður hraðar ef hún er nær búknum?
Jörðin snýst líka hraðar fyrir vikið, líklega í krinum 3 milljónustu úr sekúndu hraðar.
Þarf þá kannski að endurskipuleggja klukkur og dagatöl eitthvað fram í tímann? klórar sér í höfðinu
Jörðin snýst líka hraðar fyrir vikið, líklega í krinum 3 milljónustu úr sekúndu hraðar.
Þarf þá kannski að endurskipuleggja klukkur og dagatöl eitthvað fram í tímann? klórar sér í höfðinu
Þetta jafnar sig væntanlega með annarri tilfærslu á öðrum stað á jarðarkringlunni, en kannske er rétt að fara að draga fram vasareikninn...
Var það ekki það að vegna þess að massi færðist fjær miðju jarðar þá hægði á jörðinni eitthvað örlítið? Svona eins og þegar maður heldur á Ákavítisflösku og snýr sér í hring, þá fer maður hraðar ef hún er nær búknum?
Nei, að vísu ekki, af því að vegna þess að flaskan þarf að fara í hring á sama tíma og líkaminn verður hún að fara hraðar.
Skál fyrir því... gengur ölvaður og ringlaður í burtu eftir að hafa prufað þetta nokkrum sinnum
Hmm... ef eitthvað færist nær miðju jarðar eykst hraði möndulsnúningsins. Svipuð 'aðferð' er þekkt í listdansi á skautum (!), þ.e. að auka 'snúningshraða' með því að fara með áður útrétta handleggi upp að líkamanum (eða minnka snúningshraða með því að rétta út handleggina).
Veltir fyrir sér að bora mjög djúpa holu og henda þungum hlut ofan í hana
Vonandi er slíks eigi þörf meðan vér þekkjum undarleg innlegg vor frá þeim er eðlilegri teljast Veltir fyrir sér hvort öll innleggin séu undarleg. Vér bendum í því sambandi á að vér settum '(!)' aftan við listdans á skautum.
Ímyndar sér Vladimir í listdansi á skautum. Játar að slíkt er harla ósennilegt en skemmtileg ímyndun engu að síður.
En þessar tilfæringar á möndulhalla eiga ekki að hafa nein áhrif á veðurfar eða annað er það?
Veðurfræðingar spá því að svo verði ekki, en hvenær hafa þeir rétt fyrir sér...
Jú, jú. Þeir eru nokkuð seigir við að lýsa ríkjandi ástandi, þe veðurlýsingarnar eru oft réttar hjá þeim.
Hmm... ef eitthvað færist nær miðju jarðar eykst hraði möndulsnúningsins. Svipuð 'aðferð' er þekkt í listdansi á skautum (!), þ.e. að auka 'snúningshraða' með því að fara með áður útrétta handleggi upp að líkamanum (eða minnka snúningshraða með því að rétta út handleggina).
Veltir fyrir sér að bora mjög djúpa holu og henda þungum hlut ofan í hana
Ætli þetta virki ekki vegna minni loftmótstöðu?