Nú er spurning hvort það er Regína, Kargur eða Tina sem telst hafa leyst þetta. Þau mega slást um það.
Þau mega slást, ég er friðelskandi.
Ég þóttist nú líka vita svarið þótt ég væri ekkert að flíka því enda Bobbysocks ekki mín deild.
Er þá ekki bara Kargur eftir? Þó tel ég nú að Regína hafi haft þetta, í raun. Hún vissi lagið, bara ekki hvað það heitir.
Öss, ég vissi ekki neitt, bara datt í hug að það væri þetta norska þarna. Og það eru Tina og Kargur sem mega slást.
´
Alveg vissi ég að Hlebbi væri Evróvisjónaðdáandi. Ljómar upp
Aðdáandi Aurasýnar? Ekki vil ég nú skrifa upp á það, þetta er mest bansett rusl. Bobbysocks er auðvitað undantekning. Og Cliff.
Ég svandl, svo ég ætla ekki að slást.
Kargur!
Ert þú ekki með neitt sniðugt, Regína?
Jú, kannski ef ég leita vel. Ég hef aldrei getað neitt í þessum leik og datt ekki í hug að ég þyrfti nokkurn tíma að finna eitthvað. Fer að leita að einhverju sniðugu
Hérna:
Þú sagðir enga strengi gera þig öruggan á stöðinni.
Miði á pallinum, órólegar vélar, engir gluggar.
Ég gekk inn í svo dapra stund á stöðinni,
Þegar ég gekk út fann ég að mín þörf var rétt að byrja.
Ég bíð í röðinni þegar lestirnar koma aftur.
Ligg með þér þar sem skuggarnir hlaupa sjálfkrafa.
Hvíta herbergið í flutningi Rjómans.
Döh, ég hélt að ef ég finndi eitthvað nógu gamalt þá tæki þetta einhvern tíma, en ég hefði líkelga þurft að fara aftur til Chuck Berry eða jafnvel ennþá fyrr.
En þetta er klassík, og svarið er rétt.
Glottir eins og fífl
Já, það mátti reyna. Það vill bara svo til að þetta lag er einhverra hluta vegna frekar kyrfilega fast í hausnum á mér.
Hér koma næstu glefsur:
Brennið diskótekið,
hengið blessaðan plötusnúðinn.
Af því að tónlistin sem þeir spila stöðugt
segir mér ekkert um líf mitt.
Mér koma í hugann tvö lög, Burning down the house með Talking Heads og Hang the DJ, sem ég man ekki hverjir fluttu. Hvorugt er þó líklega rétt.
Mér koma í hugann tvö lög, Burning down the house með Talking Heads og Hang the DJ, sem ég man ekki hverjir fluttu. Hvorugt er þó líklega rétt.
Ekki er það Brennum kofann - en hið síðara hefur verið notað sem titill lagsins sem ég hef í huga. Það er þó ekki réttur titill þess.
Leggur hausinn í bleyti Jæja, þá er þetta PANIC (in the streets of London) með The Smiths.
Ljómar upp
Mikið rétt! Þetta gengur vel í kvöld.