— GESTAPÓ —
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Melkorkur 27/12/04 00:28

Mér datt í hug að það væri ef til vill góð hugmynd að semja lítið ljóð um myndina sína. En, ef þú ert ekki með mynd, eins og yðar einlægur, þá er bara ekkert að láta það stoppa sig.

Mynd ég myndi vilja fá
Melkork einn á henni
En get ei borið undir þá
Ef ,,þeir" ei slíku nenni

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Melkorkur 28/12/04 02:56

mynd ég hefi loksins fáð
furðugóðann skítinn
enter hefur sýnt mér náð
þótt ég sé dáldið skrýtinn

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 2/1/05 21:44

Áður hafði herra Thal
hrjúfa gamla svilan
Skabbi aftur skipti hal
skáldið mikla Dylan

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
litlanorn 4/2/05 17:16

lítil norn með hattinn háa
hér um þræði læðist
hefur fingur agnarsmáa
hlaupum á hún mæðist

áhríninorn með meiru - þjáist af lágstafasýki- ófrumleg fram úr hófi - umboðsmaður stjarnanna- eigandi antartíku og heimshafanna 7 - hirðdansmey og yfirsmakkari baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 4/2/05 21:18

forðum bleikur brellur lék
barbi alla daga
óðs nú formin aðeins tek
ætíð hylli Braga

Ætíð var á LSD
af því spunnust sögur
eftir þessu ekki sé
um það vitna bögur

Endurminning mín er sýrð
margar ferðir súrar
út var gefin að því býrð
Ó þið góðu túrar!

‹hugsar til gömlu góðu daganna og þeirrar hneisu að túrasögurnar séu skilgreindar sem barnabókmentir›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tina St.Sebastian 4/2/05 21:49

Leitaði mikið en loksins fannst mynd
sem lýsti mér vel og var erfitt að rangtúlka
Í comics-búð birtist mér kvenmaður nokkur
kenndur við hringi, þekktur sem "NúllStúlka"

- Passív-aggressívur erkióvinur ritstjórnarmeðlima hverra nöfn hefjast á 'E' - •  Verndari alls karlkyns- Biskup yfir westurhluta Íslands- Umsjónarmaður, hönnuður, verktaki og æðsta yfirvald í málefnum Torgs Hinnar Heilögu Ritstjórnar-
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 8/2/05 17:55

Hérna sérðu hreinan svein
hófseminni unni
gerði aldrei manni mein
mannasiði kunni

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
víólskrímsl 21/4/05 15:19

Kvenna Hepburn knáust var
kastaníu meður lokka
Kynþokkann hún kerskin bar
og klókindin af stökum þokka

Víólskrímsl - fréttaritari Ríkisútvarpsins frá fyrir neðan sjávarmál - Undirróðursráðherra Baggalútíu - meistari dulargervanna
LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: