Já þau eru efsta á baugi, því verður ekki neitað. Nú hafa Baggalýtingar bæði sent jólakveðjur í töluðu og rituðu formi og engu við það að bæta, nema jú mínum þökkum til allra þeirra sem sendu mér kveðju og sendi ég kveðju til baka til allra, líka ljótukallafélagsins.
Vonandi fá allir sem það vilja of mikið að borða og of mikið af gjöfum, vonandi verða jólin hreinlega betri en þið þorðuð að vona.
Kær kveðja frá Órækjuheimilinu.
En svo ég snúi mér nú að einhverju sem hægt er að ræða um, eru pakkahrúgurnar að stækka, eru börnin að verða gráðugri, er steikin að verða feitari, var maturinn ekki betri hjá mömmu í gamla daga og hver fékk nú flottustu gjöfina?
Pakkahrúgan hérna heima er svo stór að hún kaffærir næstum veslings litla jólatréð...
Sama hér. Pakkahrúgan lyftir trénu og nær út á gólf. Innan tíðar bætist önnur fjölskylda við hópinn og mun þá jólaflóðið slá allt út.
Ilmurinn af Hamborgarahryggnum (snobbhænsn kalla það Hamborgarhrygg) er farinn að vekja upp matarlystina. Ó þetta verður dýrðarkvöld.
Gleðileg jól.
Ég fékk meira að segja pakka sem komst varla undir jólatréð!
Hann er svo stór að hann stendur útundan báðu megin!
Iðar í skinninu eftir að fá að opna
Gleðileg jól öllsömul!
nú er ein mínúta í jólin
skríður undir rúm
Gleðileg jól púkarnir mínir, og megi þau reynast fleiri í nánustu framtíð! Hér um slóðir er pakkahrúgan svo há að við ákváðum að selja jólatréð, til að eiga fyrir fleiri pökkum!
Nú er ég búinn að opna gjafir og éta mikið magn af alls kyns góðgæti. Ég vona að þið hin hafið gert hið sama, því að þetta tvennt saman er hinn sanni jólaandi.
Ég óska ykkur öllum hér með gleðilegra jóla!
Aðfangadagurinn að mestu afstaðinn og að sjálfsögðu var innihald eins pakkans bókin Sannleikurinn um Ísland. Stekkur hæð sína í fullum herklæðum
Aðfangadagurinn að mestu afstaðinn og að sjálfsögðu var innihald eins pakkans bókin Sannleikurinn um Ísland. Stekkur hæð sína í fullum herklæðum
já loksins er maður búið að fá hana
Ég fékk nú ekki eins margar gjafir þessi jól og undanfarin þar sem fækkaði um helming í "fjölskyldunni" í kjölfar skilnaðar míns. Það var kannski bara ágætt, var alltaf með bullandi samviskubit yfir öllu pakkafarganinu sem ég var vön að fá.
En ég fékk dýrustu jólagjöf sem ég hef fengið á æfinni, nefnilega sjónvarp og fékk peninga sem sagt er að eigi að vera fyrir DVD spilara.
Voðalegar áhyggjur virðist familían hafa af því að mér leiðist!!
Vita þau ekki að ég á tölvu??
Ljómar upp
Ég er kát og sátt við jólin, fékk góðann mat og dýrindis eftirrétt, gott kaffi og svo mikið súkkulaði að mér varð hálf illt!
Svo var farið í heimsókn til vinafólks og spilað sequence í nokkra tíma!
ljómar og ljómar
ég fékk líka Sannleikann um Ísland! Það jaðrar við að ég grípi til þess að nota svokallaða "broskalla" slík er gleði mín!
Gleðileg neyslu-jól öll sömul.
Ég var svo heppinn að áskotnast mp3 spilara yfir þessi jól. Það er sannkallað hvalrek á fjörur mínar þar sem ég þarf oft á tíðum að eyða töluverðum tíma í strætisvögnum.
En enga fékk ég bókina um Sannleikan um Ísland. Tel ég að of hátt verð á tvöföldum gin í tónik ráði þar öllu um. Þó á ég ennþá eftir að eiga afmæli á þessu ári svo ég er vongóður um að fá hana þá. (Þar sem afmæli mitt er að sjálfsögðu töluvert mikilvægari dagur en aðfangadagur.) Eina fékk ég þó bókina sem á eftir að verða marg lesin og það er „The everything winebook“. Bókin er reyndar á útlensku en ég er ákveðinn í að láta það ekki stoppa mig. Ég get ábyggilega fundið eitthvað út úr þessu.
En já jæja, vonandi fengu flestir það sem þeir óskuðu sér og vonandi fengu flestir eitthvað gott að borða. Ég veit að ég er ánægður.
-
Neyslu jól já, á mínum bæ var víst neyslan ansi mikil. Svín eru líklega í útrýmingarhættu sem og peningar. En allir eru glaðir, enþá. V0nandi vinnur einhver sem ég þekki í lottó áður en vísareikningarnir koma.
Ættingjar mínir höfðu enga hugmyndir um hvað þeir eiga að gefa mér, þannig ég fékk reiðinnar býsn af gjafakortum og reiðufé, náttföt og tvær bækur(Sannleikurinn um Ísland, DaVinci lykillinn).
Er alltént sáttur, vantaði peninga fyrir bensíni.
Tekur heljarstökk af gleði
Ég fékk sannleikann um Ísland. Það dugar mér Ljómar upp
Ég fékk sannleikann um Ísland. Það dugar mér Ljómar upp
Verður ákaft sammála Galdrameistaranum
.
Endar jólin með miklum hálsríg og blótar Galdrameistaranum til heitari staða
Glottir skelmislegaSvo er hægt að hlusta á jólakveðjurnar eitthvað áfram, amk virkaði það í nótt. Ljómar upp
Lengi lifi kristsmasið!