Hvursu lágt leggst ritstjórnin í að vekja á sér athigli, þeir voru rétt í þessu að senda staðgengla sína í sjónvarpssal að söngla annars ágætt aðventulag þeirra. Komu reindar furðu vel firir og flutningurinn á tónlistinni var hreint ekki sem verstur.
En það sem bjargaði þó því að þeir féllu ekki meira í áliti hjá mér en raun ber vitni, er að þeir skáluðu í einhverju sem var augljólega vel kóbaltbætt.
Áttar sig á því nú er opinbert að ég hef hort á þátt með Gíla Marteini Lætur sig hverfa
Já og hvílík gargandi znilld.
Nú þarf bara einhver að segja mér hver var hvað.
Annar forsöngvarinn minnti mig óþyrmilega á Lars Ulrich, ætli þeir séu nokkuð skyldir?
Ég var búinn að senda eftirfarandi innlegg inn undir almennar umræður en ég læt það gossa hér aftur þar sem umræðuefnið er það sama.
Það kom svo sannarlega á óvart að sjá ritstjórnina eða a.m.k. hluta hennar birtast í þætti Gísla Marteins í kvöld. Þarna heyrði ég aðventulagið í fyrsta sinn í flutningi þeirra og það hljómaði bara ágætlega. Fyrir þá sem misstu af þættinum má benda á að hann er endursýndur á sunnudagsmorgnum.
Ég held að Spesi hafi verið söngvarinn vinstra megin en hina kann ég ekki að nefna, enda ekki séð þá síðan á árshátíðinni.
En hvað segja nú þeir, sem hafa haft horn í síðu Gísla Marteins? Er hann betri maður eftir að hafa fengið Baggalút í heimsókn eða eru þeir Baggalútar menn að minni eftir að hafa látið sjá sig í þessum þætti?
Hvað segið þið nú?
Allt gott en þú.
Ég segi allt gott enda hef ég aldrei hallmælt Gísla Marteini.
Annar forsöngvarinn minnti mig óþyrmilega á Lars Ulrich, ætli þeir séu nokkuð skyldir?
Sá var, að því ég held, staðgengill Enters. Mikið myndarmenni sem Enter hefur valið sér þar. Reyndar ekki alveg í samræmi við myndina sem við þekkjum öll af honum, en það er ekki verra að hafa smá fjölbreytni í þessu. (Auk þess er blekkingaleikur mikilvægur þegar kemur að fjölmiðlum.)
-
meyru bullu kollanir eruði eretekki annars bara grín ég kann nú ikirt í þesarri spteibu ikar en fatta smamt alveg aðiði eruðu barað djóka þí ég fýla sollis í raskat og tæhttlur hahahahahahhahah é é é
Ég legg til að þessi notandi verði bannfærður og brenndur á kóbaltbáli.
Spesi held ég að hafi verið vinstra megin, Númi hinn söngvarinn og Enter sá sem rætt var við og spilaði á gítar.
Skrítið að Gísli hafi sagt Guðmundur frændi minn við Núma.
Ætli það bendi ekki til einhverrar geðveilu hjá Gísla greyinu.
Eins og það að vera íhald sé ekki nægileg byrði fyrir strákinn...
Nú ætla ég að syngja aðeins fyrir Söndru litlu:
Atti katti nóa
atti katti nóa
emissa demissa
dollara missa dey
Og svo þetta:
Sigga litla systir mín
situr út á götu
er að mjólka ána sín
í ofur litla fötu
og þetta má til með að koma líka:
Siggi var úti
með ærnar í haga...
Æi hvernig var nú botninn á þessu?
Ég var búinn að senda eftirfarandi innlegg inn undir almennar umræður en ég læt það gossa hér aftur þar sem umræðuefnið er það sama.
Það kom svo sannarlega á óvart að sjá ritstjórnina eða a.m.k. hluta hennar birtast í þætti Gísla Marteins í kvöld. Þarna heyrði ég aðventulagið í fyrsta sinn í flutningi þeirra og það hljómaði bara ágætlega. Fyrir þá sem misstu af þættinum má benda á að hann er endursýndur á sunnudagsmorgnum.
Ég held að Spesi hafi verið söngvarinn vinstra megin en hina kann ég ekki að nefna, enda ekki séð þá síðan á árshátíðinni.
En hvað segja nú þeir, sem hafa haft horn í síðu Gísla Marteins? Er hann betri maður eftir að hafa fengið Baggalút í heimsókn eða eru þeir Baggalútar menn að minni eftir að hafa látið sjá sig í þessum þætti?
Hvað segið þið nú?
Ég tel söngvaran vinstrameginn líka hafa verið spesa, hinn söngvarinn heldég að hafi verið Enter en ég er þó alls ekki viss.
Ég tel söngvaran vinstrameginn líka hafa verið spesa, hinn söngvarinn heldég að hafi verið Enter en ég er þó alls ekki viss.
Þvaður. Þetta eru atvinnulausir leikarar. Ég sá þennan til vinstri leika fréttamanninn Steingrím Ólafsson í Sönnum íslenskum sakamálum hér um árið. Sá sem var til hægri náði nokkurri hylli sem aukakarakter í Star Trek: Voyager.
Sá sem var til hægri náði nokkurri hylli sem aukakarakter í Star Trek: Voyager.
Núnú, ertu viss um að það hafi ekki verið í Babylon 5?
En vel var mæmað og það er þó fyrir bestu.
Veltir fyrir sér hvort mæmið sé það sem koma skal hvort bráðum verði hætt að kenna krökkum að syngja en mæm komi í staðinn