Nú skal kvæðum henda í hring
á heimasvæði góðu.
Svona klæða í samfesting
og semja í næði hljóðu.
Lengi hefur tímans tönn
tuggið stefin ljóða
Nálgast jólin, aftur, enn
á það stóla má.
Heims um bólin munu menn
mikið góla þá.
Margir krásir bera á borð
og borða glás af nammi
Margir krásir bera á borð
og borða glás af nammi
aðrir blása bænaorð
og bíða svásir frammi
geisladiska á ég enn
á að giska fjóra
Margir krásir bera á borð
og borða glás af nammi
Kirkju- mási klerkar -orð
í kófi hásir gjammi.
úbs! of seinn
geisladiska á ég enn
á að giska fjóra
ýmsu fiska eftir menn
áttu wiskí, bjóra?
Jólasveinar fornir fá
feikn að reyna í bænum
Jólasveinar fornir fá
feikn að reyna í bænum
aldrei kveina karlar þá
kvölum leyna vænum
Tóbías í turninum háa
treður grasí pípu bláa
Tóbías í turninum háa
treður grasí pípu bláa
Léttist fas í fésinu knáa
flýgur mas í burt, hið gráa
Fagur hrafninn flaug hjá skjá
feitur dafnar núna
Frábær þráður...
Fagur hrafninn flaug hjá skjá
feitur dafnar núna
Á Flóka stafni feigur lá
með fjaðrasafni lúna
Hrafninn þreytti háfjöll sá
hann því breytti stefnu
Fagur hrafninn flaug hjá skjá
feitur dafnar núna
af græðgi safnar, glitri á
- gróðri sjafnartúna
Skrambinn, Skabbi mættur, passa samt stuðlana Skabbi minn. Hér líðst víst ekkert hálfkák.
Hegrinn þreytti háfjöll sá
hann því breytti stefnu
skeggið bleytti, skall í sjá
skemmtun veitti hrefnu
þetter ansi erfitt sport
öngvin dans á rósum
Þetter ansi erfitt sport,
öngvin dans á rósum.
Í þeim bransa bætir skort
bjórþamb manns af dósum.
Botninn reyndi mjög á mig;
mér ég skeindi á eftir.
Botninn reyndi mjög á mig;
mér ég skeindi á eftir.
öðrum beindi beint á þig
-bokkan greindir heftir
sumir hata heitar jól
en hundrað gata osta
Ég er greinilega blindur á mína villu hér fyrir ofan...sé hana bara ekki... andsk...
sumir hata heitar jól
en hundrað gata osta
vilja frekar frata rjól
og fúla matarkosta
Æði blindur inná þráð
orða syndum kasta
Æði blindur inná þráð
orða syndum kasta
Fagurt yndi er mín bráð
ungmey bind mun fasta.
Vinnan stundum stíf mjög er
strembnir fundir langir
Vinnan stundum stíf mjög er
strembnir fundir langir
Þá ég dund'í kvæðakver
og kyrja lundarstangir
Vaka lengi mæli með
myrka fengitíma
Vaka lengi mæli með
myrka fengitíma
Um fögur engin óður veð
ekki rengi neitt í síma
Þetta er bara brjálað stuð
Bagga- stara lútar
Þetta er bara brjálað stuð
Bagga- stara lútar
Að yrkja fjarar andlegt puð
allra skara stútar
Nú er hrímkalt seinna haust
Heltu rímið þér í nú.
Brestur í óstöðvandi grát yfir bullinu í sjáfum sér
Þetta er bara brjálað stuð
Bagga- stara -lútar
Óðs í fara erfitt puð,
orða- snarast -bútar.
ohh of seinn
Nú er hrímkalt seinna haust
Heltu rímið þér í nú.
Áfram stímum eflum raust
orð við glíma fá mátt þú
Hér ei þekkist heimskumas
hér er ekkert karpað
Hér ei þekkist heimskumas,
hér er ekkert karpað.
Rímið hlekkjar rugl og þras,
rusli í sekk er varpað.
Vikan hefur vaknað ný,
vonir gefur stórar.
Vikan hefur vaknað ný,
vonir gefur stórar.
Margur sefur samt á því
sorta vefjast ljórar
Innan tíðar lifnar ljós
lengjast blíðar stundir