Vísur dýrar verða til
víst á sýrutrippi
Físur skírar, læra skil
skýst í týru tippi
Erfitt var um andardrátt
er þitt fum mig drepti
Siðasta innlegt var ekki almennilega hringhent svo ég hoppa yfir það
Vísur dýrar verða til
víst á sýrutrippi
Gleðjist fýrar, gjörla skil
gjörðin býr í flippi
Laugardagur langur er
lekur fagur dropi
Hvernig væri að þú létir sjá þig oftar kallinn minn við söknum þinna hjómþýðu rímna og ráðvendni. Takk fyrir umvöndunina og ábendinguna, hringhendur og jólakortaskrif fara illa saman.
Laugardagur langur er
lekur fagur dropi
Skelfing ragur raunum hver
ræður magur sopi
Erfitt var um andardrátt
er þitt fum mig drepti
Erfitt var um andardrátt
er þitt fum mig drepti
Eiga gumar ansi bágt
Ólán Tumi hreppti.
Einatt styð ég Arsenal.
Öðrum ryðj´ úr vegi.
Einatt styð ég Arsenal.
Öðrum ryðj´ úr vegi.
Sportleg iðj´er spinnegal
spark um bið ég eigi.
En gott er að bryðja blátt ópal, best á þriðjudegi.
Var að kafn´ í kortunum
kátur Nafn´ í gærkvöld.
Var að kafn´ í kortunum
kátur Nafn´ í gærkvöld.
póstmarks safn úr portunum
prýðir jafnt á veföld
Lúmsk var gildra féll í flatt
fólskra skildra orða
Lúmsk var gildra féll í flatt
fólskra skildra orða
Ekki þyldi að yrkja hratt
ef þá vildi borða
Orti fljótt með fullan munn
féll mér ljótt úr tranti
Orti fljótt með fullan munn
féll mér ljótt úr tranti
Að mér sótti óvætt þunn
ætli óttann vanti.
Stendur Pétur stormi í
stafinn getur notað.
Stendur Pétur stormi í
stafinn getur notað.
Eftirhretur hrista bí
hrat í tetur potað
Er að hundi grínið gert
gis í hendu hringa
stekk yfir félaga Nafna (fyrirgefðu kallinn), innrímsleysa (einnig hugsanleg ofstuðlunarvilla...)
Stendur Pétur stormi í
stafinn getur notað.
Í bátinn setur nögl á ný
og nákul veturs rotað
Innan klæði fleyg ég fann
frygðar næði veldur
Ég er greinilega haldin rang hugmyndum um nauðsynlega innviði hringhenda.
Innan klæði fleyg ég fann
frygðar næði veldur
Sýpur þræði öðrum þann
þyrstur bæði og hrelldur
Er að brundi grínið gert
gis í hundi leiða
vonandi sleppur þetta.........
Er að brundi grínið gert
gis í hundi leiða
Á ástarfundi finnst mér vert
fríðu sprundi að greiða.
Viltu heyra vina mín,
viltu eyra ljá mér.
Viltu heyra vina mín,
viltu eyra ljá mér.
hvísla meir ei munaðshlín
mjúk er seyran frá þér
Streymir fagur frá þér saur
Sóða bragur þetta
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Streymir fagur frá þér saur
fanta bragur þetta.
Viltu, magur, eiga aur
og út í haga detta?
Varð að breyta til að fá stulun í 2. línu.
Er himinn skartar heiðríkju
held ég kvarti ekki.
Er himinn skartar heiðríkju
held ég kvarti ekki.
Graður narta í gráfíkju
getnaðsparta og sekki.
Gamall maður gamnar sér
geðbilaður orðinn.
Gamall maður gamnar sér
geðbilaður orðinn.
Unir glaður alltaf hér
elli staður korðinn
Drösla pokum druslu -nær-
dregur lokum jóla
Drösla pokum druslu -nær-
dregur lokum jóla
Úti er þoka og þéttur snær
það er nokkur gjóla.
Hringa- fríða- hrundin mín
hvar er blíða og ástarþel?
Hringa- fríða- hrundin mín
hvar er blíða og ástarþel?
Foldar síða Freyjan þín
Farðu að ríða syndasel.
Höfug angan hreppir mig.
Heimskt og rangt er svarið.