Glæsilegt. Þetta fer beinustu leið á jólagjafainnheimtulistann.
jájá, extended edition stendur eiginlega fyrir "this is a telesynch vcd ripoff"
Þetta eru vissulega ákveðnar gleðifréttir. Sérstaklega fyrir mann eins og mig. Núna vantar bara poka af Mariache tortillaflögum og dýfu til að fylgja með og þá er maður í góðum málum. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Reyndar bjóst maður hálfpartinn við 11 klukkustunda powersýningu á Hringadróttinssögu í heild sinni um þessi jól
Er ekki hægt að kaupa allar extended útgáfurnar saman í einum pakka?
Það verður eflaust hægt á næstunni.
Ætli þessir fjárplógsmenn komi ekki með eitthvað eins og Very Special extra extended DVD Box Set super edition með 1-3 aukadiskum af heimildarmyndaefni.
Er ekki hægt að kaupa allar extended útgáfurnar saman í einum pakka?
Aaa, gjörðu svo vel herra minn (ensku útgáfurnar - en líttu á verðið!)
Er ekki hægt að kaupa allar extended útgáfurnar saman í einum pakka?
Aaa, gjörðu svo vel herra minn (ensku útgáfurnar - en líttu á verðið!)
Reynir að líta á verðið en sér ekkert verð
Verðið er í linknum Tigra mín ... elta linkana, elta linkana!
Reynir að líta á verðið en sér ekkert verð
í hlekknum manneskja, :o)
það er annars 45 pund ~ 5.500kr + 1.400 kr í vsk + skýrslugjald ~7500 kall í heildina.
play.com rukkar engan sendingarkostnað til íslands, (snillingar) en takið eftir að þeir senda allar pantanir stakar hingað þannig að maður sparar ekkert með því að panta marga hluti í einu, þ.e. það leggst alltaf skyrslugjald ofan á hvert item.
Ja hvur déskotinn... frekar að maður kaupi þetta en að kaupa myndir 2 og 3 extended...
Annars var ég einmitt að fá ljómandi skemmtilega DVD sendingu af play.com, nefnilega Ghost World og Special Edition af Nightmare Before Christmas Ljómar upp
O jújú, enda færi maður nú ekki að kaupa eitthvað drasl....
Einmitt. Drasl er rusl.
Raðar Chuck Norris myndasafninu sínu í stafrófsröð