Þá fáið þið örugglega í skóinn.
Heirðu já nú fer að styttast í það! "Setur Svartaskóg útí glugga"
Vaglaskóg.
Talandi um garg, varst þú ekki einmitt fyrrum Gargónzóla?
Misminnir
Jú, einmitt, þú ert aldeilis minnugur Júlíus og ég sakna þess að þú heimsækir okkur ekki oftar. Manstu virkilega eftir allra fyrstu færslunni minni hér fyrir tæpu ári síðan? Mig minnir að þú hafir verið sá fyrsti sem varð á vegi mínum hér, nánar tiltekið á þræði sem tengdist umræðum um Simon Wiesenthal, en þá hét ég vissulega fyrst Gorgónzóla, jó, jú...
Furðuleg nefning, hvað finnurðu sameginlegt með þér og ítölskum blámygluosti?

Það var einmitt þetta sem mig minnti, skoðaði einmitt þennan þráð núna áðan eftir að þú minntist á þetta, þarf nú varla að nefna það hvað ég er feginn að Gestapóar urðu ekki að skotmörkum stofnunarinnar. Annars held ég að Vlad hafi þar lyft Grettistaki, grunar að hann hafi haft mikið með friðhelgi okkar hér að gera.
Furðuleg nefning, hvað finnurðu sameginlegt með þér og ítölskum blámygluosti?
Það er auðvitað Kóbaltbláminn sem veldur því, hvernig spyrðu?
Það var nú mest lítið, þú skilur þetta sennilega vel sjálfur með Kóbaltblámann.
Eigum við að prufa að kalla hátt og snjallt á hann Skabbi og athuga hvort hann komi ekki þá?
SKABBI ! SKABBI !
Svona köllum öll núna!
Hættiði að kalla... þá kannski kemur hann...
Ívar, veist þú hvernig maður hagar sér í nágrenni við svona viðkvæma sál eins og Skabba? Er betra að vera með öndunargrímu og silkihanska?
Jesús, halda allir að ég hafi rokið í einhverja fýlu... það er aldeilis, það liggur við að maður fari bara í fýlu...Blótar herfilega og rífur hár sitt
Er að sjálfsögðu að grínast, engin hætta á að ég rjúki aftur á dyr eins og síðast, eða gerði ég það síðast?
Faðmar Skabba
Ekki ég
Ljómar upp
Velkominn aftur Skabbi minn. Mikið er ég feginn að sjálfskipuð útlegð þín var ekki lengri en raunin bar vitni.
Og ekki vera að láta tuð nöldurkellingarinnar hleifagusturs fara í taugarnar. Svo ég vitni í Kris: Don't Let the Bastards Get You Down.
Nei nei, ég læt það ekki hafa áhrif á mig... ekki eins viðkvæmur og sumir halda...
Þetta frí mitt varð samt styttra en ég ætlaði mér, hef nefnilega verið að laumast í að lesa þræði hér annað slagið og fannst ég verða að taka skrefið alla leið inn á lútinn, en ekki eitthvað hálft skref hehe...
Jájá, enda ekkert gaman að busla í grunnu lauginni ef maður getur varpað sér í djúpu laugina af fullum þunga.