Harry Klein aðstoðarmaður Derric
Þegar að dráttarvélar voru litlar og húslausar....
Þegar að dráttarvélar voru litlar og vitlausar....
Greiðusláttuvélar.
Ís sem hét Glætan. Hann var í samskonar umbúðum og Ísnál er núna. Svo á ég margar minningar varðandi að safna glerflöskum um allan bæ á laugardags- og sunnudagsmorgnum. Í þá daga blönduðu allir beint úr glerinu.
Ég man líka eftir því þegar tjaldferðalög voru ekki fyrir neðan virðingu venjulegra íslendinga.
Munið þið eftir myndavélum með flasskubb á toppnum, hann snérist við notkun. Afar gaman.
Reiðhjól með hippastýri og "löngum" hnakk. Gírarnir voru í pedala-systeminu.
Einnig man ég eftir Datsun pallbílum og brúna fimmtíukallinum. (Ég er aðeins of ungur til að muna almennilega eftir bláa tíkallinum)
-
Þegar fólk var almennt heiðarlegt.
Þegar að dráttarvélar voru litlar og húslausar....
Ahaha.. svona Grána gamla.
Verzlunarbankinn, Samvinnubankinn, Útvegsbankinn og auðvitað "Iðnaðarbankinn, með á nótunum..."
Þegar allar dráttarvélar hétu Fergusson, og var startað með að ýta gírstönginni beint fram, baggabindivélum og baggaheyskap, þegar til var íslenskt brennivín í umbúðum, sem kallaðar voru "kryplingur".
Garibaldi súkkulaðikex með kaffinu og Sana-Sol á morgnana og Kea saxbauti úr dós hitaður á Kozan-Gaskúti...
Enskukennsla með Walter & Connie.
Aurar. Það muna flestir eftir þessu brúna klinki, en það eru kannski ekki allir sem muna eftir að hafa notað það. Einusinni kostaði ein kúla fimm aura. Það voru svokallaðar fimmaurakúlur.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Frank og Jóa, Tom Swift, Bob Moran og öllum fjórum, fimm og ævintýrabókunum
Frank og Jóa, Tom Swift, Bob Moran og öllum fjórum, fimm og ævintýrabókunum
Ja-há Ljómar upp
Sinclair Spectrum 12K leikjatölva.
Garibaldi súkkulaðikex með kaffinu og Sana-Sol á morgnana og Kea saxbauti úr dós hitaður á Kozan-Gaskúti...
Enskukennsla með Walter & Connie.
Mmmmm... sana sól... mikið fannst mér það alltaf gott á bragðið!
Ljómar upp