— GESTAPÓ —
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 5/12/04 05:43

Ég hef fundið fyrir tilfinnanlegum skorti á umræðu um kóbalt hér í Vísindaakademíunni. Þetta er gott svæði í heildina litið, en kóbaltinu megum við auðvitað ekki gleyma. Hér kem ég því færandi hendi með fróðleiksmola um kóbalt:

Ef maður blandar saman baríumi, kóbalti og nitri, þá fær maður út úr því beikon. Rökstuðningur:

Baríum = Ba
Kóbalt = Co
Nitur = N

Baríum + Kóbalt + Nitur = BaCoN

Flóknara var það nú ekki. Góðar stundir.

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 5/12/04 14:02

Mjög áhugavert.

Hvað þá með hina ágætu blöndu Kóbalts, Calsíums og Lanthanums?

CoCaCoLa

Gaman væri að einhver með aðgang að góðu efnafræðisetti myndi blanda þessar formúlur og láta okkur hin vita um árangurinn.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Lágkon hamstur 5/12/04 18:41

Hef ég fundið tveggja sameinda efnablöndu, kröftuga mjög, með kóbalti, natríumi, nitri, baríni, rúbidíni, argoni og joði. Virka efnið er kóbalt en með hinum magnast áhrif þess og fá menn ofurkrafta af neyslu þess:

CoNaN BaRbArI

Samkvæmt mælingum mínum er þessi blanda seytján fallt áhrifaríkari en berserkjasveppir.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Muss S. Sein 5/12/04 18:53

Lágkon hamstur mælti:

Hef ég fundið tveggja sameinda efnablöndu, kröftuga mjög, með kóbalti, natríumi, nitri, baríni, rúbidíni, argoni og joði. Virka efnið er kóbalt en með hinum magnast áhrif þess og fá menn ofurkrafta af neyslu þess:

CoNaN BaRbArI

Samkvæmt mælingum mínum er þessi blanda seytján fallt áhrifaríkari en berserkjasveppir.

Maður fær víst vissa málhelti við að neyta þessa skilst mér...

Muss S. Sein • Vísindaráðherra Baggalútíu og verndari Seyðisfjarðar • Séntilfantur og eigandi kóbaltsblárrar hægri handar Davíðs Oddssonar • Þaulsetinn andskoti • Fjölmiðlafulltrúi Pognorkíam
GESTUR
 • Svara • Vitna í • 
Afbæjarmaður 5/12/04 22:40

Muss S. Sein mælti:

...

Maður fær víst vissa málhelti við að neyta þessa skilst mér...

Eingöngu sé stera neytt með blöndunni, það er óráð.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Úlfamaðurinn 31/5/06 15:47

Að fólk skuli ekki hafa bannað aspartame fyrir löngu síðan í gosdrykkjum, og merkúríum í bóluefnum. Þess vegna eru stjórnmálamennirnir okkar svona einhverfir, og Halldór svona tvíhverfur,

kær kveðja,

AUUUUUUUU

matrixs@mi.is

» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: