Mér var að detta í hug að í stað ritskoðunar eins og hún er í dag, væri hægt að flytja umræður yfir í einhverskonar "Ginnungargap", þar hefðu aðeins þeir aðgang sem hafa yfir 1000 innlegg og hafa sótt sérstaklega um aðgang að svæðinu. Þannig væri hægt að vera grófari á ritskoðuninni því að umræðurnar væru ekki alveg glataðar á þennan hátt, oft hefur maður á tilfinningunni að sumt sem ætti að ritskoða sé látið lifa áfram vegna þess að inn á milli séu gullkorn sem leitt væri að tapa.
Er ekki fyrst og fremst þörf á aukinni barnagæslu? Gæta þess að börnin séu úti?
Það þarf bara að gæta hófs. Hófsemd er systir Auðmýktar en henni verður maður að kynnast fyrst.
Og hvor systirin er svo sætari? Þarf maður kannski að kynnast þeirri ófríðu á undan þeirri sætu? Það er allaveganna ansi oft þannig ...
Hlutfall kvenna í friðargæslunni er óhagstætt. Hefur einhver bent jafnréttisnefnd á þetta??
Mér finnst það nú eiginlega bara sjálfsagt þar sem að karlmenn eru hér í meirihluta á Baggalúti og þar með miklar líkur á því að hæfir karlmenn í starfið séu fleiri en hæfar konur.
Þú ert ekki kona frekar en Peter Ustinov.
Jú jú...............
Hlutfall kvenna í friðargæslunni er óhagstætt. Hefur einhver bent jafnréttisnefnd á þetta?
Mér finnst það nú eiginlega bara sjálfsagt þar sem að karlmenn eru hér í meirihluta á Baggalúti og þar með miklar líkur á því að hæfir karlmenn í starfið séu fleiri en hæfar konur.
Svo eru konur bara of miklar kellingar til að standa í svona mikilvægum störfum. Flissar ótæpilega
Bítur tá af Þarfagreini
Þetta eru ekki mikilvæg störf lengur eftir að annað hvert fífl er orðið að friðargæzluliða. Þetta eru upp til hópa verstu ritsóðarnir hérna og frekar illa þokkaðir einstaklingar. Sjálfseyðingarhvöt ritstjórnar kemur upp um sig í vali þessara aðila.
Djöfull geturðu bullað.

Kanski eina leiðin til að þeir sjálfir fari að haga sér skikkanlega til að sýna gott fordæmi. Annars eru sumir þannig að það breytir engu þar sem þeir hafa ekki þroska til að taka ábyrgð.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Bítur tá af Þarfagreini
Gefur frá sér afar aumkunarvert væl
Nær væri að heiðursmenn eins og Galdrameistarinn gengdu þessum embættum. Strigakjaftarnir eru alveg glataðir.
Úff Starir þegjandi út í loftið
Ég er svo ungur og óreyndur á þessum vef enn sem komið er. Betra að leyfa mér að komast í svona 1000 til 10.000 innlegg áður en mjer er veitt svo mikil ábyrgð.
Oft eru friðargæsluliðar ekki barnanna friðsamlegastir
Ég sting upp á friðarhöfðingjanum: Ástþóri Magnússyni.
saknar Skabba
Saknar Skabba einnig Hvað ætli Skabbi segi við þessu.