— GESTAPÓ —
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Lómagnúpur 4/12/04 11:52

Í tilefni af atburðum gærdagsins, þegar einhverjir gerðu sér leik að því að þykjast hafa verið ritskoðaðir velti ég eftirfarandi fyrir mér: Finnst ritstjórn allt í lagi að henni sé lagt orð í munn á þennan hátt og að hennar undirskrift sé fölsuð og upp á hana logið?
Ef svo er ekki þá legg ég til að til hliðar verði lagður ákveðinn ritlitur eða leturgerð sem aðeins ritstjórn veldur, til að auðkenna ristjórnarleg innskot, fyrirmæli og þess háttar.

Það var og.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Enter 4/12/04 11:56

Ef þú prentar félagsrit frelsishetjunnar út og straujar það við vægan hita þá sérðu umsvifalaust að innsigli ritstjórnar vantar.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 4/12/04 20:44

Mikið finnst mér þetta einstaklega góð hugmynd hjá Lómagnúp. Mælist ég hérmeð að þetta atriði fái forgang á "listanum".

Einhvernvegin held ég samt að Glúmur væri fljótur að finna leið framhjá hverri svosem vörn sem fyrir hann væri sett. Sem er í senn, miður og aðdáunarvert.

[Limbraskoðað vegna ágætis]

-

Þorpsbúi -
LOKAÐ
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: