Skattar og skattpíning alla daga endalaust.
Nú eru þessi heiðursmenn búinir að skrúfa upp áfengisgjaldið. Eins og ríkið súpi ekki nóg úr hverri flösku. Ekki man ég hve mikið það er, minnir það vera c.a. 60-70% sem rennur í ríkiskassan.
Svo er þetta samþykkt með svo mikilli leynd til stamma stigum við gengdarlausu hamstri almúgans sem er svo brennivínsþyrstur að það nær ekki nokkuri átt. Ég er alveg hand viss um að ég hefð verslað mér kippu eða pela fyrir hækkun... ef ég hefð haft spurnir af þessu.... NOT
Meiri melirnir. Þetta þýðir að ég tapa fyrir rest á þessu talnafiffi. Stórtapa jafnvel. Það er til lítils að fá auknar tekjur ef útgjöldin snarhækka. Alltaf tekst þeim að taka mann í hnappagatið.
Já, þetta nær ekki nokkurri átt, Ákavítið er farið að nálgast ískyggilega mikið fjögurþúsund krónur... þetta er engin hemja, svo er verið að amast yfir því að fólk bruggi heimavið... svívirða...
Heimabruggið er heilsubót
Ríkisstjórnin hækkaði þessa skatta svo að þeir hefðu meira budget fyrir fylleríum.
hmm... klórar sér í höfðinu
Þetta endar með því að maður á ekki fyrir mat
Þetta sagði einn vesalingurinn er var borinn út á götu. Brennivínið væri orðið svo dýrt að hann ætti ekki lengur fyrir húsaleigu (sem hann hafði ekki greitt í heilt ár) og mat.
Greinilegt að forgangsröðun þess manns er í góðu lagi.
Líkt og okkar allra hérna.
SKÁL!
Lítum á björtu hliðarnar, rauðvínskaggarnir fást enn á sama væga verðinu.....
Blúturinn hækkar ekki, en Ákavíti og Kóbalt eiga eftir að rísa í verði. Starir þegjandi út í loftið
Hmm voru ekki líka einhver olíufélög og ÁTVR að fara í samráð fyrirgefið samvinnu
Hmm voru ekki líka einhver olíufélög og ÁTVR að fara í samráð fyrirgefið samvinnu
Jú, lengi getur vont versnað... það er greinilegt að tveir mínusar gera ekki plús, hlýtur að hafa verið lagt saman en ekki margfaldað
Ég heyrði að það ætti að fara að leggja sérstaka vodkaleiðslu frá kólaskaga til Íslands. Held að það sé þessvegna sem rússneski herskipaflotinn var hérna um daginn. Bara að sýna stjórnvöldum að það þýðir ekkert að reyna að leggja nein gjöld á það sem úr leiðslunni mun koma því annars munu þeir fá flugskeyti inn um reykkáfinn .Ljómar upp
Ég vil bara nota tækifærið og minna ykkur sem eruð með verðtryggð lán á hvaða áhrif þetta kemur til með að hafa á vísitölu neysluverðs!
Illgjarn hlátur
Ég vil bara nota tækifærið og minna ykkur sem eruð með verðtryggð lán á hvaða áhrif þetta kemur til með að hafa á vísitölu neysluverðs!
Illgjarn hlátur
Argggghhhh, enn eitt sem þessi ríkistjórn hugsar ekki út í, hvað eru þeir að spá, verðbólgan á eftir að aukast gríðarlega...
Höldum okkur við léttvínið, bjórinn, landann, læknaspírann og smyglið og vinnum gegn verðbólguhvetjandi áhrifum hækkunarinnar.
Höldum okkur við léttvínið, bjórinn, landann, læknaspírann og smyglið og vinnum gegn verðbólguhvetjandi áhrifum hækkunarinnar.
Já, það má kannske hafa áhrif á vísitöluna þannig, en hvernig virkar það, er notað meðaltal síðustu ára á neysluvenjum eða er notað neysla hvers mánaðar í þessa útreikninga?