Hefur einhver séð þessa kvikmynd?
http://www.fortheretarded.com/starwarsholiday.html
Sem stjörnustríðskynslóðarmaður vildi ég gjarnan sjá þetta lestarslys. Almáttugur.
Hinn illi Darth Lucas hefur gert sitt besta til að losa heiminn við þessa sýru og harðbannað hana en mér skilst að myndin sé til og ráfi um fólks í neðanjarðarhreyfingum.
Getur ekki hugsast að þetta hafi upphaflega verið einskonar lókalhúmor á meðal aðstandenda og eingöngu ætlað til sýningar í lopkhófi við frumsýningu myndarinnar?
Ég veit t.d. að starfsfólk RUV gerir alltaf sitt eigið "lókal" áramótaskaup sem eingöngu er sýnt á árshátíð stofnunarinnar.
En, ég verð að segja að þessi Star Wars paródía virkar mjög forvitnileg.
Nei. Þetta var jólaþáttur sem var sýndur á CBS árið 1978 og er ekki paródía. Lucas samþykkti að láta gera hann en sér virkilega mikið eftir því. Harrisson Ford, Carrie Fisher og Hamill mæta öll. Leia prinsessa syngur meira að segja.
Ég hef fundið þáttinn og er hann víst hér (á þó eftir að fá mér rm til að geta séð fælinn).
Ég rakst á þáttinn á skáarskiptatenglamiðstöð hér í grennd. Sjáum hvort ég geti ekki nælt í hann þaðan.
Ég hef hér með séð þessa kvikmynd, og mun aldrei sjá hana aftur.
Linkaðu hana maður. Leyfðu okkur að bragða á þessum forboðna ávexti.
Skal gert Sonur S'olarinnar og Eilífur Stjórnandi Baggalútíu! http://www.baggalutur.is/profile.php?mode=viewprofile&u=734
Æ já. Þarf að hlaða niður Real Media. Þoli það forrit ekki.
Þarft í raun bara kódekkinn, þarft ekki að nota forritið sjálft.
Arrrrrrgh
Rífur hár sitt
Hakuchi, var endilega nauðsynlegt að rifja þetta upp fyrir mig? Ég sá aldrei myndina í heild, sem betur fer, því ég hélt hreinlega ekki út. Og svo tókst mér að þurrka út minningu þessar reynslu.
Og ég var ánœgð hafandi gleymt öllu.
En nú man ég, þó bara lauslega, stöku atriði.
Þetta er allt saman þér að kenna.
Fyrirgefðu Mosa. En þetta er bara eins og að horfa á umferðarslys. Maður vill ekki horfa en verður samt að kíkja aðeins.
Ég mótmæli, ég mótmæli.
Ég var nýlega í umferðaslys, sá ekki neinn skapaðan hlut, er frekar ánœgð með það líka.
Eftir það sem vér höfum lesið hér munum vér líklega eigi horfa á þetta en er það virkilega rétt skilið að mynd þessi hafi verið 'alvara' og eigi gerð í 'gríni' ? Miðað við þær lýsingar er vér höfum séð á þessu hér og annarsstaðar hefur þetta nefnilega verið nánast ólýsanlega léleg og fáránleg (í neikvæðri merkingu) hörmung Vonast eftir að ergja ei Mosu meir en orðið er með því að halda umræðunni hér áfram.
Ég gat loksins fengið fjandans rm playerinn til að virka og get því séð myndina í heild sinni. Áður hafði mér einungis tekist að horfa á teiknimyndahluta hennar sem var nógu ömurlegur fyrir.
Opnar skjalið með eftirvæntingu.
10 mín. síðar.
AAAARRRRRGGHHHHHH! HJÁLP! HJÁLP! ÞETTA ER VERSTA SJÓNVARPSEFNI SEM SÝNT HEFUR VERIÐ! GUÐ MINN ALMÁTTUGUR HVERNIG ER HÆGT AÐ GERA SVONA ÓTRÚLEGA LEIÐINLEGA HLUTI.
Engist um í kvölum en getur ekki hægt að horfa á þetta ógeð
AAARRRRGGGGHHHHH!
HLEYPIÐ MÉR ÚT! HLEYPIÐ MÉR ÚÚÚÚÚT
Klórar veggfóðrið, reynir að skrapa sér leið út
Brýst í gegnum vegginn ásamt Konunglegu lífvarðasveitum