Kæra ?. Nefndu mér einhver dæmi úr síðustu kosningabáráttu Framsóknarflokksins sem ekki er verið að standa við. Þegiðu ella.
Kæra ?. Nefndu mér einhver dæmi úr síðustu kosningabáráttu Framsóknarflokksins sem ekki er verið að standa við. Þegiðu ella.
Froðusnakk: -Jarðgangaloforð, Öryrkjamálið, Byggðakvóti aukinn, Þungaskattur verði tafarlaust afnuminn
Lýðskrum: -brosandi Halldór Ásgrímsson, Dagný talsmaður unga fólksins (stúdenta)
Þarf að segja meira?
Gúlli
Víðáttuvitlausum jarðgöngum á Siglufjörð var frestað, ætli það endi ekki í Fljótaleið þar. Annarsstaðar eru menn borandi eins og vitlausir menn.
Samkomulag við öryrkja er efnt. Öryrkjabandalagið hefur ekki sjálftöku um túlkun á því hvað í því fólst .
Búið er að samþykkja frumvarp um afnám þungaskatts
útfærsla byggðakvóta varð að línuívilnun, sem er reyndar enn vitlausara en byggðakvóti
Ég get vottað um það að Halldór á eitt glæsilegasta glott á Íslandi og Dagný er bráðung eftir því sem ég kemst næst og hefur m.a. rifist við mig og fleiri um skólagjöld og fleiri málefni ungs fólks.
Skál
Fyrsta verk mitt sem alvaldur væri að banna starfsemi Framsóknarflokksins, því miður Fíbblagangur þá er bara ekki hægt að vera með slíkan flokk í landinu.
Innan við 10. hver kjósandi greiddi þessum gamla bændaflokki sitt atkvæði í síðustu kosningum. Síðan treður þessi sveitalubbaflokkur sér til valda með því að gerast hundtryggur stuðningsaðilli við hryðjuverkamenn (þ.e. þá amerísku) og einkavinavæðingarflokkinn, banna málfrelsi og skoðanafrelsi innan flokks sem utan, drepa heilbrigðiskerfið, fjársvelta Landhelgisgæsluna, og taka upp stjórnmálasamband við hvert bananalýðveldið á fætur öðru og ég get lengi haldið áfram en þetta var bara mér efst í huga.
Brosið á Halldóri kemur þessu ekkert við, allt sem vellur upp úr þeim háttvirta þingmanni er svo broslegt eitt og sér að það er engin furða að hann sé eins og nývaknaður allan sólarhringinn, (hafi hann vaknað á annað borð nýlega).
Ég get vel rakkað niður fleiri flokka en þessi liggur best fyrir núna.
Takk fyrir alveldistignina félagar. Stekkur hæð sína
p.s. Öryrkjasamkomulagið er EKKI efnt. Það vantar um 500 milljónir uppá efndir. Sjáðu bara fjórða dómsúrskurðinn þegar hann kemur.
hellir niður úr glasinu hans Fíbblagangs Það er ekki tími til að skála ennþá..
Ef Hildisþorsti skyldi enn vera að telja þá ætla ég að kjósa Íhaldið aftur
Ef Hildisþorsti skyldi enn vera að telja þá ætla ég að kjósa Íhaldið aftur
Þú ætlar þér þó ekki að verða uppvís að kosningasvindli?
Anarkistaflokkurinn
Samfylkingin er mitt val
fara ekki að koma nýjustu tölur úr Baggalútíukjördæmi?
Minnir Kolfinn á að þetta er ekkert grín
Minnir Hildisþorsta á að gæta hlutleysis sem formaður kjörnefndar
Þar sem ég svaraði Ekki framsókn, þýðir það að framsókn missir eitt atkvæði eða var það ógilt?
Hefurðu nokkurn tíma geta merkt við ekki í einhverjum kosningum og þar með tekið atkvæði af viðkomandi flokki? Auðvitað ekki, atkvæðið er ógilt.
Þar sem ég hef enn ekki hlotið kosningarrétt mun ég ekki tjá mig um kosningu hér, þó er ég ca. 85,22% viss um hvaða flokkur fyrir valinu yrði.
Hva! Er verið að kjósa? Ég kýs þá eitthvað örvandi. VG ekki spurning.